Fótbolti

Greining okkar Heimis gekk fullkomlega upp

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Lars Lagerbäck fer yfir málin með Heimi Hallgrímssyni aðstoðarlandsliðsþjálfara.
Lars Lagerbäck fer yfir málin með Heimi Hallgrímssyni aðstoðarlandsliðsþjálfara. fréttablaðið/pjetur
„Ferðalagið var mjög gott og rólegt. Það var afar fínt að þurfa ekki að skipta um vél á leiðinni,“ sagði landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck við komuna til Zagreb í gærkvöldi. Sá sænski hafði nært sig á hóteli landsliðsins í miðborginni þegar hann gaf sig á tal við blaðamenn um níuleytið.

„Greining okkar Heimis gekk fullkomlega upp. Það var ekkert sem kom okkur á óvart,“ sagði Lagerbäck um markalausa jafnteflið á föstudagskvöldið. Tíu leikmenn Íslands náðu fínum úrslitum úr erfiðri stöðu. Landsliðsþjálfarinn telur að Króatar muni örugglega verða ákveðnari á heimavelli þótt hann efist um að þeir muni breyta miklu í sínu skipulagi.

Engar áhyggjur af þreytu

Framherjinn Kolbeinn Sigþórsson heltist úr lestinni í gær í kjölfar meiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum á föstudaginn. Ljóst er að um mikið áfall er að ræða fyrir landsliðið en Kolbeinn hafði skorað í síðustu fimm landsleikjum Íslands.

„Auðvitað vildum við hafa Kolbein en við höfum 22 leikmenn. Aðrir þurfa að fylla í skarð Kolbeins og ég er viss um að þeir muni standa sig vel.“

Lagerbäck segir að ef frá eru talin meiðsli Kolbeins sé staðan á leikmannahópnum góð. Hann hefur litlar áhyggjur af þreytu eftir erfiðan leik á föstudag.

„Læknisteymið hefur staðið sig mjög vel og við höfum hagað æfingunum þannig að strákarnir sem spiluðu mest fái sem besta endurheimt. Leikmennirnir í liðinu eru í frábæru formi þannig að ég hef engar áhyggjur af þreytu.“

Getum komið þeim á óvart

Landsliðsþjálfarinn hafði sagst eiga erfitt með að meta möguleika Íslands fyrir fyrri leikinn. Nú hafa liðin mæst og menn vita betur að hverju þeir ganga.

„Það er undir okkur komið að leggja okkur alla fram á þriðjudaginn. Þá eigum við góða möguleika á að koma þeim á óvart,“ segir Svíinn sem fimm sinnum hefur farið með sænska landsliðið á stórmót.

Nú er tækifærið að gera hið sama með litla Ísland sem yrði, gangi allt að óskum, fámennasta þjóðin til að komast í lokakeppni heimsmeistaramótsins. Draumurinn lifir.

„Engin spurning. Það hefði verið betra að vinna heima en ég tel okkur enn geta skrifað nýjan kafla í Íslandssöguna. Við stefnum á það að minnsta kosti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×