Greining okkar Heimis gekk fullkomlega upp Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar 18. nóvember 2013 08:00 Lars Lagerbäck fer yfir málin með Heimi Hallgrímssyni aðstoðarlandsliðsþjálfara. fréttablaðið/pjetur „
Ferðalagið var mjög gott og rólegt. Það var afar fínt að þurfa ekki að skipta um vél á leiðinni,“ sagði landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck við komuna til Zagreb í gærkvöldi. Sá sænski hafði nært sig á hóteli landsliðsins í miðborginni þegar hann gaf sig á tal við blaðamenn um níuleytið. „Greining okkar Heimis gekk fullkomlega upp. Það var ekkert sem kom okkur á óvart,“ sagði Lagerbäck um markalausa jafnteflið á föstudagskvöldið. Tíu leikmenn Íslands náðu fínum úrslitum úr erfiðri stöðu. Landsliðsþjálfarinn telur að Króatar muni örugglega verða ákveðnari á heimavelli þótt hann efist um að þeir muni breyta miklu í sínu skipulagi.Engar áhyggjur af þreytu Framherjinn Kolbeinn Sigþórsson heltist úr lestinni í gær í kjölfar meiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum á föstudaginn. Ljóst er að um mikið áfall er að ræða fyrir landsliðið en Kolbeinn hafði skorað í síðustu fimm landsleikjum Íslands. „Auðvitað vildum við hafa Kolbein en við höfum 22 leikmenn. Aðrir þurfa að fylla í skarð Kolbeins og ég er viss um að þeir muni standa sig vel.“ Lagerbäck segir að ef frá eru talin meiðsli Kolbeins sé staðan á leikmannahópnum góð. Hann hefur litlar áhyggjur af þreytu eftir erfiðan leik á föstudag. „Læknisteymið hefur staðið sig mjög vel og við höfum hagað æfingunum þannig að strákarnir sem spiluðu mest fái sem besta endurheimt. Leikmennirnir í liðinu eru í frábæru formi þannig að ég hef engar áhyggjur af þreytu.“Getum komið þeim á óvart Landsliðsþjálfarinn hafði sagst eiga erfitt með að meta möguleika Íslands fyrir fyrri leikinn. Nú hafa liðin mæst og menn vita betur að hverju þeir ganga. „Það er undir okkur komið að leggja okkur alla fram á þriðjudaginn. Þá eigum við góða möguleika á að koma þeim á óvart,“ segir Svíinn sem fimm sinnum hefur farið með sænska landsliðið á stórmót. Nú er tækifærið að gera hið sama með litla Ísland sem yrði, gangi allt að óskum, fámennasta þjóðin til að komast í lokakeppni heimsmeistaramótsins. Draumurinn lifir. „Engin spurning. Það hefði verið betra að vinna heima en ég tel okkur enn geta skrifað nýjan kafla í Íslandssöguna. Við stefnum á það að minnsta kosti.“
Fótbolti Mest lesið Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Fótbolti „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Sport Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Mun Nagelsmann hætta með landsliðið eða verður hann rekinn? Fótbolti Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti Heimsmeistarinn í beinni á Vísi Sport Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Barir á Englandi opnir lengur á meðan England spilar Fótbolti Fleiri fréttir Barir á Englandi opnir lengur á meðan England spilar Mun Nagelsmann hætta með landsliðið eða verður hann rekinn? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uefa gefur ekki rautt fyrir að hylja munninn Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR Vildi spila undir De Zerbi Náði að halda áfram eftir að fá drep í fótinn Spánverjar sýndu sitt rétta andlit í 32-liða úrslitum Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Mikael snýr aftur til AGF vegna fjölskyldunnar HM-þjálfari kvaddi með maraþonblaðamannafundi Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Ekki hrifinn af því að spila í bakverði Forseti Grænhöfðaeyja: „Við getum unnið Argentínu 1-0“ Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Stuðningsmennirnir skapað mikinn áhuga á víkingaöldinni Forveri Freys tekur við af honum Hlín er nýja nían hjá Malmö í Svíþjóð Hvað er að gerast hjá Manchester United? Maður dagsins á HM: Harry Kane hoppaði upp fyrir Pelé Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum „Leyfið börnunum að vaka“ Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Skoraði mikilvægt mark fyrir Bandaríkjamenn en fékk svo rautt spjald Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn