Mikið af peningaseðlum á floti í indversku votlendi 27. júní 2012 06:39
Mikill fjöldi Indverja hefur svamlað um votlendi í Assam héraði eftir að fréttir bárust um að peningaseðlar væru á floti um allt í einni ánni þar. Times of India fjallar um þessa uppákomu en um er að ræða Silsako votlendið sem þekkt er fyrir fjölbreytileika hvað fisktegundir varðar og því hefur fjöldi fiskimanna viðurværi sitt af veiðum í votlendinu. Í upphafi vikunnar tóku að berast fréttir af því að mikið af 500 og 1.000 rúpíuseðlum væru á floti í einni ánni. Verðmæti þessara seðla er svipað og íslenskra þúsund- og tvö þúsundkalla. Fréttirnar bárust fljótt til nærliggjandi borgar og þúsundir borgarbúa streymdu til votlendisins í von um skjótfenginn gróða. Og raunar höfðu margir þeirra tvo til þrjá seðla upp úr krafsinu. Sagan segir hinsvegar að fyrstu fiskimennirnir sem tóku eftir seðlum hafi náð allt að 50.000 rúpíum eða sem svarar til hundrað þúsund króna. Það er töluvert fé á þessum slóðum. Yfirvöld í Assam hafa hinsvegar enga hugmynd um hvernig þessir peningaseðlar enduðu í votlendinu. Fyrsta verk þeirra verður að kalla til sérfræðinga frá bandarísku alríkislögreglunni FBI til að kanna hvort seðlarnir séu ekta eða falsaðir.
Mest lesið Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Erlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Erlent Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ Innlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Innlent Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Innlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Innlent Fleiri fréttir Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Sjá meira