Íbúar forða sér frá Aleppo af ótta við meiri átök 27. júlí 2012 00:30 Íbúar í Aleppo taka eigur sínar og yfirgefa borgina áður en verstu bardagarnir hefjast. nordicphotos/AFP
Manaf Tlass, þekktasti liðhlaupinn úr æðsta hring Assads Sýrlandsforseta, segist vilja leggja sitt af mörkum til að sameina lið uppreisnarmanna, sem samsett er af ólíkum og oft á tíðum andstæðum fylkingum. Leiðtogar fylkinganna hittust á fundi í Katar í gær með það fyrir augum að koma sér saman um myndun bráðabirgðastjórnar, sem tæki við völdum ef Bashar al Assad forseti hrökklaðist frá völdum. Tlass var náinn samstarfsmaður Assads en segist hafa hlaupist á brott þegar honum varð ljóst að ekki yrði hægt að sannfæra Assad um að hætta miskunnarlausum hernaði gegn almenningi og uppreisnarmönnum. Harðir bardagar hafa verið í Aleppo, næststærstu borg landsins, og er búist við enn harðari bardögum á næstu dögum þegar stjórnarherinn hefur stórsókn sína. Bæði stjórnarherinn og uppreisnarmenn hafa verið að styrkja lið sitt fyrir átökin, en íbúar borgarinnar flýja af ótta við átökin. Alls hafa átökin í Sýrlandi kostað nærri 20 þúsund manns lífið frá því þau hófust snemma á síðasta ári. Undanfarnar vikur hafa um hundrað manns látið lífið á degi hverjum. Samtökin Læknar án landamæra telja að um 120 þúsund manns hafi flúið land, flestir til nágrannalandanna Tyrklands, Líbanon og Jórdaníu. - gb
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Sjá meira