Katrín Ómars: Við ætlum á EM og það er sama hverjum við mætum í umspilinu Óskar Ófeigur Jónsson í Osló skrifar 19. september 2012 20:31
Íslenska kvennalandsliðinu tókst ekki að tryggja sér sigur í sínum riðli í undankeppni EM í kvöld og þarf að fara í gegnum umspilið eftir 1-2 tap á móti Noregi í Osló í kvöld. Lokamínútur fyrri hálfleiks voru íslenska liðinu dýrkeyptar því á þeim skoruðu þær norsku bæði mörkin sín. „Þetta sýnir bara hvernig fótboltinn er. Ef þú missir einbeitingu í þrjár mínútur þá getur svona gerst. Við náðum síðan ekki að skora tvö mörk til að bæta fyrir það," sagði Katrín Ómarsdóttir, besti leikmaður íslenska liðsins á Ullevaal leikvanginum í kvöld. „Við spiluðum mjög flottan seinni hálfleik og verðum að taka það með okkur út úr leiknum. Við höfum ekki spilað áður svona vel saman sem lið. Við tökum þetta með okkur og vonandi getum við líka spilað svona vel í næsta leik," sagði Katrín. „Oftast hefur þetta ekki gengið hjá okkur þegar lið hafa leyft okkur að halda boltanum. Það gekk upp og það var mikil löngun í liðinu í að jafna. Það sást alveg á öllum hvað var mikill vilji í öllum að ná öðru markinu en það bara gekk ekki upp hjá okkur," sagði Katrín. Hún átti mjög sniðuga stoðsendingu á Margréti Láru í marki íslenska liðsins í seinni hálfleik. „Já hún var flott. Þetta var frábært mark og það kveikti í okkur. Við þurftum á þessu marki að halda og það hélt leiknum gangandi fyrir okkur. En þetta gekk ekki," sagði Katrín og framundan eru tveir leikir í umspili um laust sæti á EM í Svíþjóð. „Við ætlum á EM og það er sama hverjum við mætum í umspilinu. Við ætlum okkur að komast inn á EM og bæta fyrir síðasta mót þegar við gerðum ekki vel. Við ætlum að komast þangað aftur og gera betur. Það eru mikil þroskamerki á liðinu. Við vorum að spila vel og seinni hálfleikurinn var mjög góður," sagði Katrín að lokum.
Fótbolti Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir HK lagði tíu Þróttara og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Sjá meira