Tetra Pak erfingi handtekinn vegna andláts eiginkonu sinnar 10. júlí 2012 20:30 Hans Kristian Rausing og eiginkona hans, Eva.
Sonur mannsins sem fann upp útbreiddustu matvælaumbúðir veraldar hefur verið handtekinn eftir að eiginkona hans, Eva, fannst látin á heimili þeirra hjóna í Lundúnum. Breski fréttavefurinn The Daily Mail greinir frá því að Hans Kristian Rausing, sonur Svíans Hans Rausing, hafi verið handtekinn í dag eftir að lögreglan fann eiginkonu hans látna á heimili þeirra. Svo virðist sem hún hafi látist af of stórum skammti lyfja eða fíkniefna. Hans Kristian var handtekinn í gær en á honum fundust fíkniefni. Í kjölfarið fór lögreglan á heimili hans sem er í einu dýrasta hverfi Bretlands. Þar fundu þeir eiginkonu hans sem reyndist vera látin á efri hæð hússins. Bæði eru þau tæplega fimmtug. Hjónin hafa átt við fíkniefnavanda að stríða samkvæmt Daily Mail en þar kemur fram að Rausing hafi verið handtekinn fyrir fjórum árum þegar hann smyglaði heróíni og krakki inn í bandaríska sendiráðið í Lundúnum. Í kjölfarið leitaði lögreglan á heimili þeirra hjóna og fundu þá meira krakk og heróín og að auki kókaín að andvirði 2000 punda, sem eru um 400 þúsund krónur á núvirði. Hans Kristian mun erfa yfir fimm milljarða punda en faðir hans fann upp matvælaumbúðirnar Tetra Pak. Þær eru meðal annars notaðar til þess að geyma mjólk og eru útbreiddustu matvælaumbúðir veraldar. Hans situr þó ekki einn að arfinum því hann á tvö systkini. Samkvæmt frétt Daily Mail var eiginkona Hans krufin í dag, ekki er vitað um niðurstöður þeirrar krufningar. Þá er hann sjálfur í yfirheyrslum hjá Scotland Yard vegna málsins en hann er grunaður um að hafa átt þátt í dauða konu sinnar.
Mest lesið Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Fleiri fréttir Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Sjá meira