Erlent

Sprautaði sósu á kærustuna fyrir að lesa "mömmuklám“

Skáldsagan Fifty Shades of Grey ætlar að verða söluhæsta skáldsaga heimsins þetta árið.
Skáldsagan Fifty Shades of Grey ætlar að verða söluhæsta skáldsaga heimsins þetta árið.
Það er óhætt að segja að skáldsagan Fifty Shades of Grey eftir rithöfundinn El James fari sigurför um allan heim. Bókin, sem hefur verið kölluð mömmuklám af gárungunum, hefur meðal annars orðið til þess að sérfræðingar í Bandaríkjunum búast við meiriháttar aukningu á barneignum þar í landi. Þannig er gert ráð fyrir ástleitnum afleiðingum skáldskaparins sem fjallar í örstuttu máli um konu sem á í ástarsambandi við hinn dularfulla Grey.

The Sun greinir reyndar frá því í dag að bókin virðist einnig hafa neikvæðar afleiðingar á mannlífið. Dómstólar í bænum Carlisle í Bretlandi þurftu nefnilega að takast á við sérkennilegt líkamsárásarmál tengdu bókinni.

Þannig var karlmaður ákærður fyrir að ráðast á kærustu sína og sprauta á hana brúnni sósu í júní síðastliðnum. Kærastan hafði lesið bókina af fullmiklum áhuga að mati kærastans sem sagði við yfirheyrslur hjá lögreglunni honum fyndist bókin klámfengin og óviðeigandi.

Parið reifst vegna þessa þann 25. júní síðastliðinn og skiptust að auki á smáskilaboðum um málið. Það, auk annarra persónulegra vandamála, varð til þess að kærastinn fór til kærustu sinnar og reyndi að fá hana til þess að hætta lestrinum. Kærastan lét sér að sjálfsögðu ekki segjast, og rak hann út. Kærastinn brást þá hinn versti við, sprautaði HP sósu framan í hana og á að auki að hafa slegið hana. Sjálfur neitar hann því að hafa lagt hendur á hana.

Konan kærði kærastann fyrir ofbeldið og dómstólar tóku hart á málinu. Þannig var honum gert að greiða henni hundrað pund, eða um 20 þúsund krónur, í miskabætur auk þess sem honum er gert að sæta útgöngubanni á kvöldin og nóttinni í sex vikur og sinna samfélagsþjónustu í hálft ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×