Uppgötvuðu undarlegt sólkerfi 24. júní 2012 14:00 Túlkun listamanns á Kepler-36 sólkerfinu. Mynd: Harvard-Smithsonian Center for Astrophysics/
Stjörnufræðingar hafa uppgötvað afar sérkennilegt sólkerfi í um 1.200 ljósára fjarlægð frá Jörðinni. Þar má finna tvær gerólíkar reikistjörnur, gasrisa og berghnött, á óvenju nálægum sporbrautum sem snúast á ógnarhraða um stjörnuna Kepler-36. Vísindamennirnir uppgötvuðu sólkerfið þegar þeir rýndu í gögn úr Keplersjónaukanum en hann fylgist með yfir 150 þúsund stjörnum á himinhvolfinu í þeirri von um að mögulegar reikistjörnur gangi fyrir einhverjar þeirra — rétt eins og þegar Venus gekk fyrir sólina fyrir skömmu. Stjarnan Kepler-36 líkist sólinni en er þó örlítið heitari og nokkrum milljörðum árum eldri. Innri reikistjarnan nefnist Kepler-36b og er bergreikistjarna. Hún 1.5 sinnum stærri en Jörðin og 4.5 sinnum þyngri. Reikistjarnan er í 17 milljón kílómetra fjarlægð frá stjörnunni og því er umferðartími hennar (eða ár) aðeins 13.8 dagar. Ytri reikistjarnan er kölluð Kepler-36c og er gasrisi. Hún er 3.7 sinnum stærri en jörðin og 8 sinnum þyngri. Umferðartími hennar er 16 dagar. Stjörnufræðingar reyna nú að átta sig á hvernig svo gerólíkir hnettir enduðu svo nálægt hvor öðrum en þetta þykir afar óvenjulegt. Í sólkerfinu okkar eru bergreikistjörnurnar nálægt sólinni á meðan gasrisarnir eru langt frá henni. Hægt er að lesa um málið á Stjörnufræðivefnum.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Sjá meira