Erlent

Romney enn á mikilli siglingu

ÞJ skrifar
Mitt Romney
Mitt Romney NordicPhotos/AFP
Repúblikaninn Mitt Romney er enn á flugi í skoðanakönnunum fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og hefur jafnvel mælst með meira fylgi en Barack Obama, sitjandi forseti, á landsvísu.

Obama er þó enn með forskot þegar kemur að kjörmannastuðningi, en nokkuð hefur þó dregið saman með frambjóðendunum á síðustu dögum og vissan er ekki eins mikil og hefur verið. Fylgissveiflan er rakin til góðrar frammistöðu Romneys í kappræðunum, en sjaldan hefur önnur eins sveifla sést eftir kappræður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×