Erlent

Náðu stjórn á ómannaðri vél

Samskipti við ómannaðar flugvélar sem notaðar eru í hernaðarskyni eru dulkóðuð en hægt er að ná stjórn á þeim þrátt fyrir það.Nordicphotos/AFP
Samskipti við ómannaðar flugvélar sem notaðar eru í hernaðarskyni eru dulkóðuð en hægt er að ná stjórn á þeim þrátt fyrir það.Nordicphotos/AFP
Bandarískum tölvunarfræðingum tókst að hakka sig inn í stjórnkerfi ómannaðrar flugvélar af sömu gerð og bandaríska leyniþjónustan notar til loftárása og ná þannig stjórn á flugvélinni.

Með því tóku vísindamennirnir áskorun bandaríska heimavarnarráðuneytisins, sem hafði heitið þeim 1.000 bandaríkjadölum sem gæti hakkað sig inn í stýrikerfi ómannaðra flugvéla, að því er segir í frétt BBC.

Talið er mögulegt að sams konar tölvuárás hafi grandað ómannaðri flugvél leyniþjónustunnar yfir Íran á síðasta ári. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×