Erlent

Bregðast þarf við þurrkum

Bandarískir bændur hafa glímt við óvenju mikla þurrka í ár, rétt eins og bændur í Afríku og á Indlandi.
Bandarískir bændur hafa glímt við óvenju mikla þurrka í ár, rétt eins og bændur í Afríku og á Indlandi. nordicphotos/AFP
Alþjóðlega veðurfræðistofnunin segir nauðsynlegt að ríki heims komi sér saman um skynsamleg viðbrögð við þurrkum, sem eru óvenju miklir þetta árið og hafa áhrif á matvælaverð um heim allan.

Bandarískir bændur hafa orðið hart úti í þurrkum þetta árið, og er búist við lélegri kornuppskeru þrátt fyrir að korni hafi verið sáð í stærra landsvæði en þekkst hefur í sjötíu ár.

Bændur í Afríku, Indlandi og víðar hafa sömuleiðis fundið harkalega fyrir þurrkum.

Áhrif þurrkanna á matvælaverð valda því að ríkin þurfa að grípa til kerfisbundinna aðgerða, bæði til að spara vatn og draga úr neyslu.

„Talið er að loftslagsbreytingar muni valda því að þurrkar verði tíðari, meiri og lengri á komandi tímum, og það muni hafa áhrif á mörgum sviðum, einkum á matvæli, vatn, heilsufar og orkumál,“ segir Michel Jarraud, framkvæmdastjóri stofnunarinnar.

Ástralía er eina ríkið sem hefur mótað sér skýra stefnu varðandi þurrka, en jafnvel áströlsk stjórnvöld segja að sú stefna dugi ekki lengur til að takast á við loftslagsbreytingar.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×