Meira lífsstíll en íþrótt 18. ágúst 2012 14:00 Tommi segir fólk ekki þurfa að vera í sérstaklega góðu formi til að byrja í parkour. Hér má sjá hann í miðju stökki í myndbandinu fyrir Red Bull-keppnina. Mynd/Sigurður svansson, red bull Ísland
Parkour er jaðarsport sem hægt er að æfa hvar sem er. Iðkendur íþróttarinnar hlaupa á hundruðum. Íþróttir „Fyrir mér er parkour það að nota umhverfið sem maður hefur í kringum sig til að leika sér," segir Tommi Þ. Guðmundsson, parkour-iðkandi með meiru. Parkour er jaðarsport sem í hugum marga snýst um að hlaupa upp veggi, hoppa yfir grindverk og fara í heljarstökk fram af húsþökum en að sögn Tomma er það miklu meira. „Í stuttu máli snýst parkour um að komast á milli staða á sem áhrifaríkastan hátt og skemmta sér í leiðinni. Það er hægt að æfa hvar sem er því það eina sem þú þarft ert þú sjálfur og þægileg föt," segir Tommi. Hann segir alla sem hafa áhuga á geta byrjað að stunda sportið og að ekki þurfi að vera í sérstaklega góðu formi til þess að byrja. „Ég hafði aldrei æft neitt þegar ég byrjaði en maður kemst alveg í form við að stunda þetta," segir hann. „Ég mæli samt ekki með að fólk byrji á því að hoppa fram af húsþökum," bætir hann við og hlær. Aðspurður hvort ekki sé mikið um meiðsli segir hann svo ekki vera. „Ég hef aldrei slasað mig alvarlega á þessu. Eftir því sem maður lærir meira þá lærir maður sjálfkrafa að beita líkamanum betur sem auðveldar til dæmis allar lendingar," segir hann. Hægt er að æfa parkour á nokkrum stöðum hérlendis og þar á meðal er Fimleikafélagið Björk. Óli Tómas Freysson er yfirþjálfari þar og segir hann parkour vera lífsstíl frekar en íþrótt. „Það skiptir ekki máli hver er bestur heldur snýst þetta um að koma saman og leika sér," segir hann. Óli er spretthlaupari en byrjaði í parkour fyrir tveimur árum. „Við fáum frí frá æfingum í september og erum þá hvött til að fara í aðrar íþróttir á meðan til að halda okkur í formi. Ég hafði prufað alls konar hluti áður en ákvað að skella mér í parkour og varð strax ástfanginn af því og hef ekki getað hætt," segir hann. Hann telur iðkendur hérlendis hlaupa á hundruðum en svo virðist sem þeir séu helst strákar undir þrítugu. Hann segir sportið þó vera alveg jafn mikið fyrir konur og hvetur þær til að prufa að mæta á æfingu. Algengt er að sjá iðkendur að leik við Stjórnarráðið þegar mikið er í gangi í miðbænum og eru því allar líkur á að hægt verði að líta listina með eigin augum þar í dag í tilefni menningarnætur í Reykjavík. tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Fleiri fréttir Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Elvari og félögum sópað í sumarfrí „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey Katar - Sviss | Nær Katar að vinna sinn fyrsta leik á HM? HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Russell byrjar á ráspól í Barcelona Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Magdeburg tapaði í undanúrslitum Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Sjá meira