Gera lítið úr vanda í undirbúningi ÓL 18. júlí 2012 04:00 Herinn til bjargar Breski herinn kallaði til 3.500 manns til að sinna gæslu á Ólympíuleikunum í London. Öryggisfyrirtækið G4S átti að útvega 10.000 manns til gæslu en náði því ekki og láðist að nefna það fyrr en tvær vikur voru í setningu leikanna. NordicPhotos/AFP
Þrátt fyrir vandræðalegar uppákomur í aðdraganda Ólympíuleikanna í London segja skipuleggjendur að allt muni ganga upp. Öryggisfyrirtæki sveikst um að útvega fjölda gæslumanna. Leikarnir hefjast 27. júlí. Skipuleggjendur Ólympíuleikanna í London, sem hefjast eftir rúma viku, gera lítið úr fréttum af fjölþættum vandræðum í kringum leikana. Á mánudag fóru keppendur að hópast til borgarinnar og þrátt fyrir að starfsfólk og stjórnendur á Heathrow-flugvelli hafi staðið sína vakt með prýði komu upp kvartanir vegna samgönguerfiðleika frá flugvelli að Ólympíuþorpinu. Tvær rútur, önnur með bandaríska íþróttamenn og hin með Ástrala villtust á leið sinni, sem varð til þess að mikið var skeggrætt um meint klúður á félagsmiðlum. Sebastian Coe, formaður undirbúningsnefndarinnar, sagði í samtali við fjölmiðla í gær að rétt væri að setja uppákomurnar í samhengi við umfang verkefnisins. „Fyrir utan nokkrar rangar beygjur og nokkur Twitter-innlegg erum við í góðum málum. Meirihlutinn af íþróttafólkinu komst á áfangastað í heilu lagi og á réttum tíma. Þar tóku yfirmaður Ólympíuþorpsins og framkvæmdastjórinn á móti þeim og þau lýstu yfir ánægju sinni á Twitt-er. Níutíu og átta prósent ferðanna gengu algerlega áfallalaust fyrir sig.“ Veðrið hefur ekki beinlínis leikið við borgarbúa og miklar rigningar hafa enn aukið á flækjustigið. Meðal annars er keppnisaðstaðan fyrir róðrarkeppni og reiðmennsku gegnsósa, en Coe segist bjartsýnn. „Þetta veldur okkur vandræðum, en allt verður til reiðu á réttum tíma. Það er enn margt ógert en við verðum tilbúin.“ Veðurspá gerir þó ráð fyrir þurrki fram að setningu leikanna. Að síðustu má nefna afar pínlega uppákomu þar sem öryggisfyrirtækið G4S brást algerlega. Því láðist að fá til sín nógu mikinn mannskap til gæslu og tilkynnti yfirvöldum ekki um vandræðin fyrr en nýlega, þegar einungis tvær vikur voru þar til leikarnir yrðu settir. Yfirvöld kölluðu til 3.500 manna varaherlið með skömmum fyrirvara til að fylla í skörðin. Coe sagði að þetta myndi ekki skaða öryggisviðbúnað vegna leikanna. Nick Buckles, forstjóri G4S, var kallaður til vitnisburðar fyrir þingmönnum í gær þar sem hann var auðmýktin uppmáluð. „Þetta er afar niðurlægjandi uppákoma fyrir landið, ekki satt?“ spurði þingmaðurinn David Winnwick Buckles sem svaraði: „Ég get ekki verið þér ósammála um það.“ Leikarnir verða settir hinn 27. þessa mánaðar.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Erlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Innlent Fleiri fréttir Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Sjá meira