Segja Rússa stuðla að borgarastríði 1. júní 2012 02:00 Á mótmælafundi í bænum Kfarnebel flykktist fólk að bifreið friðargæslumanna Sameinuðu þjóðanna.Fréttablaðið/AP „
Þeir eru að segja mér að þeir vilji ekki sjá borgarastríð. Ég hef verið að segja þeim að stefna þeirra muni hjálpa til við að stuðla að borgarastríði,“ sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um afstöðu Rússa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Rússar hafa, eins og Kínverjar, verið andvígir því að öryggisráðið heimili ríkjum Sameinuðu þjóðanna að beita hervaldi eða annars konar beinni íhlutun í málefni Sýrlands. Bæði Rússar og Kínverjar ítrekuðu þessa afstöðu sína í gær. Clinton brást við með því að gagnrýna harðlega afstöðu beggja ríkjanna. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir mikla hættu á því að borgarastríð hefjist með algjöru öngþveiti í Sýrlandi, nú í kjölfar fjöldamorðanna í Houla á föstudag. Meira en hundrað manns létu þar lífið, bæði í sprengjuárásum stjórnarhersins og þegar vígasveitir, sem stjórnarherinn hefur stundum fengið til liðs við sig, gengu hús úr húsi og myrtu fólk. Í gær gerði stjórnarherinn síðan aftur árás á Houla. Hafi einhverjir haft í upphafi trú á friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins, sem Kofi Annan fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna var fenginn til að þrýsta á um, þá virðist sú trú fokin út í veður og vind. Vopnahléð, sem bæði Sýrlandsstjórn og uppreisnarherinn hétu að virða, hefur að mestu verið nafnið eitt, þótt hugsanlega hafi sveitir beggja eitthvað haldið aftur af sér vegna þess. Qassim Saadeddine, herforingi í herliði uppreisnarmanna í Homs, sagði í gær að stjórnarherinn hafi frest þangað til í dag til að leggja niður vopn samkvæmt því sem um var samið. Að öðrum kosti telji uppreisnarmenn sig ekki þurfa að virða vopnahléð heldur. Riyad Assad, yfirmaður uppreisnarsveitanna, bar þetta hins vegar fljótlega til baka og sagði stjórnarhernum ekki hafa verið settur neinn frestur. Einnig ítrekaði hann að uppreisnarmenn telji sig bundna af vopnahléssamkomulaginu. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Innlent Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Innlent Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla Innlent Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Innlent Dæmdur í tuttugu og sjö ára fangelsi fyrir valdaránstilraun Erlent Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Innlent Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Innlent Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Erlent Samdráttur eftir fjögurra ára vaxtarskeið Innlent Fleiri fréttir Dæmdur í tuttugu og sjö ára fangelsi fyrir valdaránstilraun Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Breskur sendiherra rekinn vegna tengsla við Epstein Hver var Charlie Kirk? Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Neyðarfundur verði boðaður í Öryggisráði SÞ Vill draga Netanyahu fyrir dóm vegna árásarinnar í Doha Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Íslendingur fastur í Nepal: „Við erum búin að halda okkur inni allan tímann“ Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Boða hertar aðgerðir gegn afbrotaunglingum Pólland ekki verið nær stríði frá því í seinni heimsstyrjöldinni Herinn skakkar leikinn í Katmandú Europol og Bandaríkin lýsa eftir úkraínskum tölvuþrjót Hyggjast bólusetja kóalabirni gegn klamydíu Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Standa fast á því að undirskriftin sé ekki Trumps Skipar strax nýjan forsætisráðherra Segja leiðtoga Hamas hafa lifað árásina af Kveikt í þinghúsinu og forsætisráðherrann hrökklast frá Leið yfir nýja ráðherrann á fyrsta fundi Á þriðja tug lífeyrisþega látinn eftir spengjuárás Rússa Ísraelar gera loftárásir á Katar Støre á vandasamt verk fyrir höndum eftir kosningasigur Svíar munu banna farsíma í grunnskólum frá næsta hausti Kosningaúrslit í Noregi: Störe fagnar sigri en Solberg mögulega á förum Sjá meira