Sótti óvart um geitahald í Hafnarfirði 8. maí 2012 04:00 Geitur eru kýr hinna fátæku og mjög skemmtilegar í samskiptum við menn, segir Jóhann Davíð Barðason í bréfi til bæjarstjórans í Hafnarfirði.Fréttablaðið/SBS „
Ég verð að leiðrétta þetta við bæinn,“ segir Jóhann Davíð Barðason sem sótti óvart um leyfi til að halda tvær geitur við hús í útjaðri Hafnarfjarðar. „Þar sem nú hefur harðnað í ári hjá mörgum eftir efnahagshrunið þá hafa undirritaður og fjölskylda hans ákveðið að snúa sér meira að heimaræktun, bæði til að halda aftur af fjárútlátum og til að stuðla að bættri heilsu, við erum nú komin með fjölbreyttan matjurtagarð og lítið gróðurhús þar sem við ræktum flest það sem við borðum,“ segir Jóhann í bréfi sem hann skrifaði Guðmundi Rúnari Árnasyni bæjarstjóra. Bréf Jóhanns var tekið fyrir á síðasta fundi bæjarráðs sem fól Guðmundi Rúnari bæjarstjóra að afla nánari upplýsinga um geitamálið. Jóhann segist hins vegar aldrei hafa ætlað að senda bréfið. Hann hafi fengið það verkefni í íslensku í Háskólanum í Reykjavík að skrifa formlegt bréf og óska eftir leyfi bæjaryfirvalda til að halda geiturnar tvær. „Ég prentaði bréfið út í vinnunni og skildi eftir á borðinu. Vinnufélagi minn sem var að fara á bæjarskrifstofurnar sá þarna bréf til bæjarstjórans og kippti því bara með og skilaði inn fyrir mig,“ segir Jóhann og hlær. Bæjaryfirvöld tóku sem sagt ekki fyrir að heimila geitahaldið heldur fólu æðsta embættismanni sínum að grennslast fyrir um áætlanir Jóhanns. „Ég er ánægður með hvað þetta er komið langt.“- gar
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira