Vopnahléið að leysast upp í ófrið 16. apríl 2012 06:00 Eldur kviknaði í nokkrum byggingum í Homs í gær eftir að stjórnarherinn skaut sprengjum á hverfi undir valdi uppreisnarmanna. FréttablaðiÐ/AP
Vopnahlé stríðandi fylkinga í Sýrlandi leystist upp í átök í gær einungis fjórum dögum eftir að því var lýst yfir. Stjórnarherinn skaut sprengjum á íbúðahverfi í borginni Homs þar sem stjórnarandstaðan ræður ríkjum. Hófst sprengjuregnið nokkrum klukkustundum áður en eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna (SÞ) mættu til Homs en hlutverk þeirra er að fylgjast með því að vopnahlénu sé fylgt eftir. Þótt árásirnar í gær hafi verið umfangsminni en árásir síðustu vikna vekja þær upp efasemdir um að Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, hafi raunverulegan áhuga á að fylgja eftir friðaráætlun Kofi Annan, erindreka SÞ í Sýrlandi. Assad samþykkti friðaráætlunina eftir að Rússar, helstu bandamenn stjórnar hans, hvöttu til þess en hann hefur reynst tregur til að fylgja henni eftir. Uppreisnarmenn hafa einnig neitað að leggja alfarið niður vopn og hafa gert nokkrar árásir á stjórnarhermenn frá því að friðaráætlunin var samþykkt. Áætluninni er ætlað að binda endi á borgarastríðið en átök hafa staðið yfir í þrettán mánuði.- mþl
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira