Erlent

Örþrifaráð sem hafa vakið lítil viðbrögð

Tíbetski útlaginn Jemphel Yeshi kveikti í sjálfum sér í Nýju-Delhí í síðasta mánuði til að mótmæla heimsókn Hu Jintao, forseta Kína, til Indlands.nordicphtos/AFP
Tíbetski útlaginn Jemphel Yeshi kveikti í sjálfum sér í Nýju-Delhí í síðasta mánuði til að mótmæla heimsókn Hu Jintao, forseta Kína, til Indlands.nordicphtos/AFP
Alls hafa 32 Tíbetar kveikt í sjálfum sér undanfarið ár til þess að mótmæla yfirráðum Kína. Þetta er ein stærsta bylgja sjálfsvíga af þessu tagi áratugum saman.

Kínversk stjórnvöld hafa samt látið sér fátt um finnast og þrýstingur á þau frá almenningi eða stjórnvöldum í öðrum ríkjum hefur ekki tekið minnsta kipp.

Almenningur í Kína hefur heldur ekki mikla samúð með sjálfstæðisbaráttu Tíbeta og fréttir af þessu hafa ekki verið áberandi í kínverskum fjölmiðlum.

Flestir hafa sjálfsvígsmótmælendurnir verið ungir Búddamunkar. Þeir hafa kveikt í sér á markaðstorgum, aðalgötum og herbúðum eða á öðrum stöðum, sem tengjast kínverskum valdastofnunum. Sumir þeirra höfðu drukkið steinolíu áður en þeir kveiktu í sér til að framkalla sprengingu innan úr líkamanum.

Flestar íkveikjurnar hafa verið í vestanverðu Kína, og þar af flestar í einu strjálbýlu héraði skammt frá landamærum Tíbets. Nú síðast kveiktu tveir rúmlega tvítugir búddamunkar í sjálfum sér á föstudaginn var.

Í augum búddista er sjálfsíkveikja óeigingjörn og áhrifarík fórnarathöfn, oftast gerð til að vekja samúð með málstað trúarinnar þegar hún á í vök að verjast. Áhrifin geta enst lengi og jafnvel styrkst með tímanum.

Á seinni tímum hafa búddistar gripið til mótmæla af þessu tagi gegn Víetnamstríðinu og til að berjast fyrir lýðræði í Suður-Kóreu. Þá kveiktu hundrað námsmenn samtímis í sjálfum sér á Indlandi árið 1990 til að mótmæla erfðastéttakerfinu þar í landi.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×