Innlent

Glæpir og yfirvöld til umræðu í hádeginu

Varðberg, samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál, efnir til hádegisfundar á morgun til að ræða skipulagða glæpastarfsemi og viðbrögð yfirvalda við henni.

Þeir Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, og Karl Steinar Valsson, hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, eru gestir fundarins og gefa innsýn í málið.

Fundurinn verður í ráðstefnusal Þjóðminjasafns við Suðurgötu í dag milli tólf og eitt. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×