Gjöld á vatnsréttindi styggja Landsvirkjun 7. mars 2012 08:00 Ágreiningur um verðmat vatnsréttinda við Jökulsá á Dal er nú til úrlausnar hjá Hæstarétti. Fljótsdalshérað vill hins vegar leggja fasteignagjöld á réttindin strax og miða þá við frummat frá árinu 2007. Fréttablaðið/GVA
Innanríkisráðuneytið staðfestir að vatnsréttindi Jökulsár á Dal eigi að taka til fasteignamats. Fljótsdalshérað vill að matinu sé hraðað svo hægt verði að leggja fasteignagjöld á vatnsréttindin. Úrskurðurinn hefur fordæmisgildi um allt land. Orkuvinnslufyrirtæki gætu þurft að greiða háar fjárhæðir í fasteignagjöld af vatnsréttindum í kjölfar nýs úrskurðar innanríkisráðuneytisins. Í desember 2009 ákvað Þjóðskrá Íslands að meta ætti til fasteignamats vatnsréttindi sem aðskilin voru frá jörðum við Jökulsá á Dal og framseld Landsvirkjun vegna gerðar Kárahnjúkavirkjunar. Landsvirkjun kærði þá ákvörðun til innanríkisráðuneytisins. Fyrirtækið sagði meðal annars að slíkir efnislegir annmarkar væru á úrskurði Þjóðskrár að ógilda ætti hann. „Fráleit er sú túlkun sem Þjóðskrá virðist leggja til grundvallar að miða beri við framsal eða sölu réttindanna. Slík réttindi geti svo áratugum skipti verið ónýtt og án nokkurs arðs fyrir rétthafa eftir að til sölu eða framsals vatnsréttinda hefur komið,“ segir um rök Landsvirkjunar í úrskurði innanríkisráðuneytisins sem fellst hvorki á þessa túlkun fyrirtækisins né kröfur þess. „Er eðlilegt í þessu sambandi að miða við það tímamark er nýting réttindanna hefst og þau geta þar með gefið af sér tekjur,“ segir ráðuneytið. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir ekki einfalt að meta hverju fasteignamatið muni skila Fljótsdalshéraði í fasteignagjöldum. „Við viljum að fulltrúar Þjóðskrár komi til fundar við okkur svo menn geti glöggvað sig betur á þessu,“ segir Björn og bendir á að samkvæmt ákvörðun Þjóðskrár sjálfrar eigi fasteignamatið að liggja fyrir innan tveggja mánaða. Jafnvel þótt Landsvirkjun fari með málið fyrir dómstóla fresti það ekki álagningunni. Þá segir Björn úrskurð ráðuneytisins hljóta að taka til annarra vatnsréttinda innan sveitarfélagsins sem og annars staðar á landinu. „Þetta er í raun úrskurður um að það sé eðlilegt að meta vatnsréttindi til fasteignamats þegar viðkomandi eign hefur verið nýtt. Í Lagarfossvirkjun og Grímsárvirkjun eru líka vatnsréttindi sem þá er eðlilegt að meta til fasteignamats,“ segir bæjarstjórinn. Óljóst er í hvaða gjaldflokk vatnsréttindin verða sett. Björn telur þau hljóta að verða annað hvort í flokki með hlunnindum þar sem álagningarhlutfallið er 0,5 prósent af fasteignamati eða þá í flokki með atvinnuhúsnæði þar sem hlutfallið er 1,65 prósent. Ekki náðist í Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar í gær.gar@frettabladid.is
Mest lesið „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Innlent Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Veður Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Innlent „Alveg hræðilegt ástand“ Innlent Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Fleiri fréttir Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Sjá meira