Rússar ásaka Vesturlönd 19. júlí 2012 00:15 Bifreið friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna á vettvangi sjálfsvígsárásarinnar í gær. Fréttablaðið/AP
Rússnesk stjórnvöld ásökuðu í gær Vesturlönd fyrir að kynda undir uppreisn og átökum í Sýrlandi, sama dag og sjálfsvígsárás í höfuðborginni Damaskus kostaði nokkra nánustu samstarfsmenn Bashar al Assads forseta lífið. „Í staðinn fyrir að róa niður uppreisnarmennina, þá eru sumir samherja okkar að hvetja þá áfram," sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og vísaði til leiðtoga á Vesturlöndum sem nú þrýsta á Rússa og Kínverja að samþykkja refsiaðgerðir gegn Sýrlandi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Meðal þeirra sem féllu í árásinni voru varnarmálaráðherrann Daúd Radsjeha og aðstoðarráðherra hans, Assef Shavkat, en sá er mágur Assads forseta. Einnig féll Hassan Turkmani, fyrrverandi varnarmálaráðherra. Meðal særðra er Mohammed Shaar innanríkisráðherra. Sýrlenskir uppreisnarmenn hafa lýst yfir ábyrgð sinni á árásinni. Rússar hafa verið andvígir því að beita Sýrlandsstjórn þrýstingi vegna átakanna, sem kostað hafa á annan tug þúsunda lífið frá því mótmæli og síðar vopnuð uppreisn hófst gegn Assad forseta á síðasta ári. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman í gær til að reyna að ná samkomulagi um frekari þrýsting á Assad.- gb
Mest lesið Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Veður Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Innlent Fleiri fréttir Kallar fylkiskosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Sjá meira