Atburðir í Rúmeníu vekja áhyggjur ESB 19. júlí 2012 06:30 Forsætisráðherra Rúmeníu hefur staðið í ströngu síðan hann tók við í maí og er sakaður um tilraunir til valdaráns. nordicphotos/AFP
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gagnrýnir harðlega Rúmeníu og Búlgaríu fyrir að standast ekki kröfur sem gerðar eru til aðildarríkjanna. Búlgaría ræður ekkert við skipulagða glæpi og Rúmeníustjórn grefur undan lýðræðinu. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir atburðina í Rúmeníu síðustu vikur vekja alvarlegar efasemdir um að Victor Ponta forsætisráðherra og stjórn hans beri næga virðingu fyrir lýðræði og reglum réttarríkisins. „Stjórnmálamenn mega ekki reyna að ógna dómurum áður en dómur er kveðinn upp, né ráðast á dómara þegar þeir hafa tekið ákvarðanir sem falla ekki í kramið,“ sagði Barroso í gær þegar hann kynnti áfangaskýrslur um umbætur, sem bæði Rúmenía og Búlgaría lofuðu að hrinda í framkvæmd þegar þessi tvö ríki fengu aðild að ESB fyrir fimm árum. Bæði löndin eru harðlega gagnrýnd fyrir að hægt hafi miðað. Í Rúmeníu hefur Ponta forsætisráðherra, sem er sósíaldemókrati, staðið í ströngu síðan hann tók við embættinu í maí, þegar fyrri ríkisstjórn missti meirihluta sinn á þingi. Gagnrýnendur segja hann hafa gripið til vafasamra aðgerða í því skyni að hrifsa til sín öll völd í landinu. Ponta hefur meðal annars reynt að víkja Traian Basescu forseta úr embætti. Hann hefur hunsað niðurstöðu stjórnlagadómstóls og reynt að breyta starfsreglum dómstólsins. Hann hefur vikið umboðsmanni þjóðþingsins úr embætti sínu. Í lok júlí verður þjóðaratkvæðagreiðsla, þar sem þjóðin verður spurð hvort hún samþykki brottvikningu forsetans. Ponta lét hins vegar undan þrýstingi frá ESB og féllst í gær á að þjóðaratkvæðagreiðslan verði ekki gild nema kosningaþátttakan nái meirihluta kosningabærra manna. Í áfangaskýrslum ESB eru stjórnvöld í bæði Rúmeníu og Búlgaríu gagnrýnd fyrir að hafa ekki náð tilætluðum árangri við uppbyggingu í dómsmálum og hafa heldur ekki náð að draga nægilega úr landlægri spillingu, auk þess sem Búlgaría er gagnrýnd fyrir að ráða lítið sem ekkert við skipulagða glæpastarfsemi. Við inngöngu landanna í ESB árið 2007 var samþykkt að framkvæmdastjórn ESB fylgdist grannt með árangri landanna á þessum sviðum, og aðstoða þau eftir megni þangað til þau stæðust þær kröfur sem gerðar eru til aðildarríkja ESB. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira