Búið að endurskipuleggja Eignarhaldsfélagið Fasteign 12. maí 2012 07:30 Bygging Háskólans í Reykjavík er ein þeirra eigna sem mun fara út úr Eignarhaldsfélaginu Fasteign ef allir leigutakar þess samþykkja endurskipulagninguna. Fréttablaðið/stefán
Bygging Háskólans í Reykjavík er á meðal eigna sem færðar verða út úr félaginu. Það mun starfa áfram og verða í eigu sveitarfélaga og Arion banka. Leiga lækkar um 40-50% til ársloka 2014 og 24-40% frá 2015. Eignir verða seldar út úr Eignarhaldsfélaginu Fasteign (EFF), leyst verður úr leigumálum Háskólans í Reykjavík (HR) og málefnum sem tengjast Álftanesi, nýir skilmálar verða settir inn í lánasamninga, leigusamningar verða lækkaðir gríðarlega og rekstur lágmarkaður. Þá verður allt hlutafé í félaginu fært niður og þeir aðilar sem verða leigutakar þess munu auka það aftur. Þetta kemur fram í kynningu á fjárhagslegri endurskipulagningu EFF, sem Fréttablaðið hefur undir höndum. EFF var stofnað af nokkrum sveitarfélögum og Glitni í árslok 2002. Stofnaðilar lögðu eignir inn í félagið og leigðu þær síðan aftur af því. Á meðal eigna sem sveitarfélögin lögðu inn voru íþróttamannvirki og skóla- og stjórnsýslubyggingar. Glitnir lagði eignir sem hýstu hluta af starfsemi bankans og lóð við Kirkjusand sem átti að hýsa framtíðarhöfuðstöðvar bankans. EFF réðst auk þess í margs konar framkvæmdir. Þeirra kostnaðarsömust var nýbygging Háskólans í Reykjavík. Kostnaður vegna hennar stóð í rúmum 15 milljörðum króna í lok árs 2010, samkvæmt síðasta birta ársreikningi EFF. Þeir kröfuhafar sem koma að endurskipulagningunni, sem eru að mestu leyti Íslandsbanki og skilanefnd Glitnis, hafa þegar ritað undir samkomulagið. Búið er að skrifa undir það fyrir hönd EFF með fyrirvara um samþykki leigutaka og hluthafafundar félagsins. Samkvæmt tímaáætlun er stefnt á að samþykki leigutaka fáist í næstu viku og að hluthafafundur EFF geti staðfest samningana 21. maí næstkomandi. Kröfuhafarnir munu þurfa að afskrifa milljarða króna vegna byggingar HR, ógjaldfærni Álftaness og lánabreytinga annarra sveitarfélaga sem átt hafa hlut í félaginu. Í endurskipulagningunni felst að húsið sem hýsir veitingastaðinn Nauthól, lóð við Kirkjusand og ákveðnar eignir á Álftanesi verða seldar út úr EFF. Þá verður bygging Háskólans í Reykjavík (HR) og eignir sem Íslandsbanki, Kreditkort og Borgun settu inn í Fasteign færðar í dótturfélög ásamt öllum áhvílandi skuldum. Íslandsbanki, Kreditkort og Borgun munu síðan yfirtaka þau félög. Eftir mun standa nýtt fasteignafélag utan um þær eignir sem sveitarfélög lögðu upprunalega inn í það. Auk þess verða eignir sem Arion banki leigir þar inni. Félagið verður í eigu leigutakanna, sveitarfélaga og Arion banka, en ákvæði verða sett inn í lánasamninga sem mun gera lánardrottnum kleift að grípa inn í ef áætlunin gengur ekki eftir. Í kynningunni segir: „áætlað er að leiga lækki um 40-50% á tímabilinu 1. júlí 2011 til ársloka 2014, en 24-40% frá ársbyrjun 2015“. Eigendur EFF munu auk þess fá kauprétt á eignunum sem félagið heldur á. Á móti mun bókfært verð eignarhluta þeirra í Fasteign lækka mjög mikið vegna lækkunar á tekjum og annarra breytinga á starfsemi félagsins. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira