Stundarbjartsýni hafnaði í blindgötu 12. maí 2012 00:15 Leiðtogar íhaldsmanna og sósíaldemókrata virtust bjartsýnir um stund. nordicphotos/AFP
Möguleikar á stjórnarmyndun á Grikklandi vart í sjónmáli. Um stund virtist í gær stefna í þriggja flokka samstarf hægri manna, sósíaldemókrata og lítils vinstriflokks. Venizelos hefur frest þangað til í dag til að ljúka stjórnarmyndun. Grískir stjórnmálamenn virtust um tíma í gær nokkuð bjartsýnir á að Evangelos Venizelos, leiðtoga sósíalistaflokksins Pasok, tækist að berja saman meirihlutastjórn – eða í það minnsta minnihlutastjórn Pasok og Lýðræðislega vinstriflokksins, sem íhaldsflokkurinn Nýtt lýðræði myndi verja falli. Antonis Samaras, leiðtogi Nýs lýðræðis, sagði hugmyndir Pasoks og Lýðræðislega vinstriflokksins vera mjög áþekkar hugmyndum hægri manna. „Við erum tilbúnir til að styðja þessa ríkisstjórn eða verja minnihlutastjórn falli," sagði Samaras. Fotis Kouvelis, leiðtogi Lýðræðislega vinstriflokksins, tók hins vegar skýrt fram að hann hefði engan áhuga á að sitja í ríkisstjórn með sósíaldemókrötum og íhaldsmönnum, enda voru það þessir tveir flokkar sem sömdu við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um þær ströngu aðhaldsaðgerðir sem Grikkir eru að kikna undan. Samaras gagnrýndi hins vegar harðlega Syrizas, bandalag róttækra vinstriflokka, sem varð næststærsta aflið á þjóðþingi landsins í kosningunum um síðustu helgi. „Þeir hafa enga hugmynd um það hvernig bankakerfið virkar," sagði Samaras og sagði að „ábyrgðarleysi og lýðskrum" flokksins sé að stofna aðild Grikklands að myntbandalagi Evrópusambandsins í voða. Alexis Tsipras, leiðtogi bandalags róttæku vinstriflokkanna, hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann reyndi að mynda meirihlutastjórn fyrr í vikunni. Á miðvikudag skrifaði hann leiðtogum Evrópusambandsins bréf þar sem hann sagði kosningaúrslitin í Grikklandi um síðustu helgi hafa kippt fótunum undan björgunarpakkanum, sem fyrri stjórn samþykkti með skilmálum um strangar aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum. Hann sagði síðan niðurskurðinn ekki hafa leyst vandamál Grikkja. Þvert á móti sé hann að eyðileggja efnahag landsins svo nú stefni í neyðarástand. Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, segir Grikki hins vegar ekki komast hjá því að framfylgja aðhaldsáformum. „Ef einhver segir Grikkjum eitthvað annað þá er hann ekki að sinna skyldu sinni við grísku þjóðina." Venizelos þarf að ljúka stjórnarmyndun í dag, að öðrum kosti verður Karolos Papoulias, forseti landsins, að gera tilraun til að mynda þjóðstjórn. Gangi það ekki verður boðað til nýrra kosninga strax í júní. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Fleiri fréttir Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Mannfallið að nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Sjá meira