Erlent

Sjóræningjar saman í sæng

Sjóræningjaflokkar um alla Evrópu munu bjóða sig fram sem eina heild í næstu Evrópukosningum. N
Sjóræningjaflokkar um alla Evrópu munu bjóða sig fram sem eina heild í næstu Evrópukosningum. N ordicphotos/AFP
Svokallaðir „sjóræningjaflokkar“ í Evrópusambandsríkjum hyggjast bjóða sig fram sem einn flokk í næstu kosningum til Evrópuþings.

Fréttavefur EUobserver segir frá samkomu alþjóðasamtaka sjóræningjaflokka þar sem þetta var ákveðið. Uppgangur hefur verið hjá slíkum flokkum undanfarið, en þeir sækja innblástur í sænskan flokk sem var stofnaður í kringum deiliveituna Piratebay.org árið 2006. Þeir fengu tvo Evrópuþingmenn kjörna í síðustu kosningunum.

Flokkarnir leggja mikla áherslu á lýðfrelsi, beint lýðræði, gegnsæi og frelsi til að deila upplýsingum og gögnum.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×