Innlent

Átök þrátt fyrir vopnahlé

Frá Sýrlandi
Frá Sýrlandi
Hundrað fjörutíu og sex létust í átökum í Sýrlandi í gær, þrátt fyrir að stríðandi fylkingar hafi samþykkt að leggja niður vopn í fjóra daga frá og með gærmorgninum þegar ein mesta trúarhátíð múslima, Eid-al-Adha, hófst en hún markar upphaf hinna árlegu pílagrímaferða til Mekka.

Það var um hádegisbil í gær sem átök brutust út í höfuðborginni Damaskus. Yfirmaður í frjálsa sýrlenska hernum segir í samtali við BBC að sýrlandsher hafi aldrei haft í hyggju að virða vopnahléð og að hann hafi sótt jafn hart að andstæðingum sínum og áður. Sýrlandsher segir hins vegar að hermenn Assad forseta hafi einungis verið að svara árásum uppreisnarmanna.

Fimmtíu og þrír óbreyttir borgarar eru á meðal þeirra sem lágu í valnum í gær, en þar á meðal létust fimm þegar bílsprengja sprakk í nágrenni við leikvöll í íbúðarhverfi í suðurhluta Damaskus.

Svo virðist sem friður eigi ekki eftir að ríkja í landinu næstu daga líkt og vonast var til en stjórnarherinn sendi frá sér tilkynningu í gær þess efnis að hann ætlaði að halda áfram að verjast vopnuðum hryðjuverkamönnum og vísaði þar til frjálsa sýrlenska hersins.

Sprengingar og skothvellir heyrðust í Damaskus snemma í morgun og herflugvélar hafi verið á sveimi yfir bæði höfuðborginni og borginni Aleppo. Bresk mannréttindasamtök segja að þrettán hafi fallið í landinu það sem af er degi, þar á meðal létust fimm þegar bílsprengja sprakk í morgun fyrir utan kirkju í borginni Deir Al Zor í austurhluta landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×