Átök þrátt fyrir vopnahlé 27. október 2012 11:20 Frá Sýrlandi
Hundrað fjörutíu og sex létust í átökum í Sýrlandi í gær, þrátt fyrir að stríðandi fylkingar hafi samþykkt að leggja niður vopn í fjóra daga frá og með gærmorgninum þegar ein mesta trúarhátíð múslima, Eid-al-Adha, hófst en hún markar upphaf hinna árlegu pílagrímaferða til Mekka. Það var um hádegisbil í gær sem átök brutust út í höfuðborginni Damaskus. Yfirmaður í frjálsa sýrlenska hernum segir í samtali við BBC að sýrlandsher hafi aldrei haft í hyggju að virða vopnahléð og að hann hafi sótt jafn hart að andstæðingum sínum og áður. Sýrlandsher segir hins vegar að hermenn Assad forseta hafi einungis verið að svara árásum uppreisnarmanna. Fimmtíu og þrír óbreyttir borgarar eru á meðal þeirra sem lágu í valnum í gær, en þar á meðal létust fimm þegar bílsprengja sprakk í nágrenni við leikvöll í íbúðarhverfi í suðurhluta Damaskus. Svo virðist sem friður eigi ekki eftir að ríkja í landinu næstu daga líkt og vonast var til en stjórnarherinn sendi frá sér tilkynningu í gær þess efnis að hann ætlaði að halda áfram að verjast vopnuðum hryðjuverkamönnum og vísaði þar til frjálsa sýrlenska hersins. Sprengingar og skothvellir heyrðust í Damaskus snemma í morgun og herflugvélar hafi verið á sveimi yfir bæði höfuðborginni og borginni Aleppo. Bresk mannréttindasamtök segja að þrettán hafi fallið í landinu það sem af er degi, þar á meðal létust fimm þegar bílsprengja sprakk í morgun fyrir utan kirkju í borginni Deir Al Zor í austurhluta landsins.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Sjá meira