Erlent

Stikla úr norsku Næturvaktinni

BBI skrifar
Nú styttist í að norsk endurgerð Næturvaktarþáttanna verði sýnd á norsku sjónvarpsstöðinni TV2 og stutt kynningarmyndband eða stikla (e. trailer) er farin að birtast á stöðinni. Hér má sjá stikluna.

Jóhann Ævar Grímsson, einn af handritshöfundum íslensku Næturvaktarinnar, er bjartsýnn á að norska teyminu takist vel til og þættirnir verði alla vega jafnsniðugir þar úti og hér heima. „Já, það verður nefnilega allt pínulítið fyndnara á norsku,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×