Innlent

Smálánafyrirtæki hafna 40% umsókna um lán

Haukur Örn Birgisson, hæstaréttarlögmaður, fer fyrir Útlánum, samtökum smálánafyrirtækja. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann gaf þar álit sitt á þeirri umræðu sem sprottið hefur upp vegna smálánafyrirtækja.

„Það fyrsta sem ég vill benda á er að um starfsemi þessa fyrirtækja gilda auðvitað lög," segir Haukur. „Það hefur verið látið í veðri vaka í fjölmiðlum að engar reglu séu til staðar og að ekkert eftirlit sé með þessari starfsemi. Þetta er ekki rétt."

Haukur bendir á að lög hafi verið til staðar um smálánafyrirtæki frá því að þau fóru að skjóta upp kollinum. Þá hafi verið unnið minnisblað af hálfu Efnahagsráðuneytisins þar sem úttekt var gerð á starfseminni.

Þá segir Haukur að reglur séu til staðar um aðgengi einstaklinga að lánunum.

„Það verður skerpt á þessum reglum með tilkomu nýrra laga um neytendalán sem vonandi verða samþykkt nú í vetur. Fyrirtækin hafa í raun hvatt til þess að lögin verði samþykkt svo að hægt verði að koma til móts við gagnrýnina," segir Haukur.

Haukur gagnrýnir þá umræðu sem hefur verið um starfshætti smálánafyrirtækja. Hann segir aðgengi að lánunum vera takmarkað.

„Þessi félög hafna tæpum 40 prósent umsókna um lán. Til þess að uppfylla þau skilyrði að fá lán þarf einstaklingur að vera fjárráða og ekki vera í meðferð hjá umboðsmanni Alþingis. Þá er einnig farið í gegnum upplýsingar um vanskil. Þannig að þetta eru svipuð viðmið og fjármálastofnanir almennt notast við þegar gefin eru út viðskiptakort."

Hægt er að hlusta á viðtalið við Hauk í heild sinni hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×