Þjórsá klýfur Samfylkingu 10. mars 2012 13:30 Við Þjórsá. Mynd/Vilhelm
Þingflokkur Samfylkingarinnar er klofinn í afstöðu sinni til þess hvort færa beri neðri hluta Þjórsár úr virkjanaflokki í biðflokk í rammaáætlun um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Enn er jafnframt deilt innan stjórnarflokkanna um stöðu nokkurra virkjanakosta á miðhálendinu í rammaáætlun. Til stóð að leggja endanlega þingsályktunartillögu um rammaáætlun fyrir ríkisstjórnina á fundi hennar í gærmorgun en málinu var frestað á síðustu stundu, þar sem Samfylkingin var ekki reiðubúin að taka lokaafstöðu til málsins. Sumir þingmenn flokksins taka undir þá skoðun Vinstri grænna að endurskoða eigi neðri hluta Þjórsár sem virkjanakost í ljósi þess að fram séu komnar nýjar upplýsingar um viðgang laxastofnsins í ánni. Frekari rannsóknir kalli á að Þjórsá fari í biðflokk. Hluti þingflokksins vill hins vegar ganga lengra í virkjanamálum. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er þó almenn samstaða innan atvinnuveganefndar Alþingis um að breyta upprunalegum drögum að rammaáætlun eins lítið og mögulegt er. Innan Samfylkingarinnar er það sjónarmið uppi að ekki eigi að hreyfa mikið við virkjanakostum, þar sem áætlunin sé lögð fram til framtíðar og verði að geta staðið af sér ríkisstjórnarskipti. Samkvæmt þingmálaskrá átti að leggja rammaáætlun fram í byrjun febrúar, en málið er enn á borði Oddnýjar G. Harðardóttur iðnaðarráðherra. Til stendur að taka málið upp á þingflokksfundi Samfylkingar á mánudag. Samkvæmt þingsköpum verður að leggja fram frumvörp fyrir 1. apríl til að þau verði tekin á dagskrá. -sv
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira