Jóhanna Sigurðardóttir: Rammaáætlun vonandi afgreidd á næstu dögum 10. mars 2012 10:46 Jóhanna Sigurðardóttir.
Flokkstjórnarfundur samfylkingarinnar hófst klukkan níu í morgun í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík. Fundurinn hófst á ávarpi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Í ræðu sinni gerði hún meðal annars fyrirhuguð lög um nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi að umtalsefni auk rammaáætlunar. Þingflokkur Samfylkingar er reyndar klofinn í afstöðu sinni til virkjana í Þjórsá. Til stóð að lokaútgáfa rammaáætlunar um verndum og nýtingu Þjórsár yrði lögð fyrir ríkisstjórnina í gær, en hætt var við á síðustu stundu þar sem Samfylkingin var ekki reiðubúin til að taka lokaafstöðu. Bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið fjalla um málið á forsíðu í dag. Rammaáætlunin er því enn á borði iðnaðarráðherra. Til stendur að taka málið upp á þingflokksfundi Samfylkingar á mánudag. Í ræðu sinni sagði Jóhanna um rammaáætlunina: „Rammaáætlunin verður síðan vonandi afgreidd úr ríkisstjórn á næstu dögum. Þau tímamót verða mikið fagnaðarefni, ekki síst fyrir okkur jafnaðarmenn sem höfum í áraraðir talað fyrir málinu. Þetta ferli hefur staðið yfir í mörg ár og munu skipta miklu um að fagleg sjónarmið liggi ávallt að baki ákvörðunum um nýtingu náttúrusvæða eða verndun þeirra. Rammaáætlunin leggur grunn að gjörbreyttum vinnubrögð í þessum efnum og markar endalok þess tilviljanakennda ákvörðunarferlis í þessum viðkvæmu málum sem einkenndi ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Afgreiðsla málsins hefur sannarlega tafist og hafa ýmsir af því tilefni varað við því að fagleg sjónarmið verði látin víkja fyrir pólitískum." Þá sagði hún vel koma til greina að fjármálafyrirtækin og samfélagið í heild komi enn frekar til móts við hópa sem urðu illa út úr hruninu og dreifi þannig kostnaði heimilana vegna hrunsins.
Tengdar fréttir Þjórsá klýfur Samfylkingu Leggja átti lokaútgáfu rammaáætlunar fyrir ríkisstjórnina í gær en hætt var við á síðustu stundu. Spurningin hvort setja eigi neðri hluta Þjórsár í biðflokk klýfur Samfylkingu. Málið er á borði iðnaðarráðherra. 10. mars 2012 13:30 Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Fleiri fréttir Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Sjá meira
Þjórsá klýfur Samfylkingu Leggja átti lokaútgáfu rammaáætlunar fyrir ríkisstjórnina í gær en hætt var við á síðustu stundu. Spurningin hvort setja eigi neðri hluta Þjórsár í biðflokk klýfur Samfylkingu. Málið er á borði iðnaðarráðherra. 10. mars 2012 13:30
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“