Svíar kvöddu EM með flottum sigri á Frökkum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2012 18:00 Mynd/AFP
Svíar unnu Frakka 2-0 í lokaleik sínum á EM í fótbolta en þessi flotti sigur breytti því þó ekki að Svíar eru á leiðinni heim eftir riðlakeppnina. Þetta var fyrsta tap Frakka í 23 leikjum og það þýðir að Frakkarnir þurfa að mæta Heims- og Evrópumeisturum Spánverja í átta liða úrslitunum. Zlatan Ibrahimovic kom Svíum yfir með snilldarskoti á 54. mínútu eftir sendingu Sebastian Larsson og Larsson innsiglaði síðan sigurinn undir lokin. Svíar unnu stemningssigur í kvöld en Frakkarnir voru í vandræðum með baráttuglatt sænskt lið. Ola Toivonen fékk algjört dauðafæri á 10. mínútu eftir að Anders Svensson átti stungusendingu inn á hann. Toivonen sólaði Hugo Lloris en skaut síðan í stöngina úr þröngu færi. Frakkarnir voru kannski aðeins betri í jöfnum fyrri hálfleik og bestu færi þeirra fengu þeir Franck Ribery og Karim Benzema. Svíarnir spiluðu engu að síður vel og gáfu ekki mörg færi á sér. Zlatan Ibrahimovic kom Svíum í 1-0 á 54. mínútu með stórkostlegu viðstöðulausu skoti eftir fyrirgjöf Sebastian Larsson frá hægri. Olof Mellberg, fyrirliði Svía, var frábær í vörn Svíanna og komst fyrir hvert skot Frakkana á fætur öðru. Frakkarnir sóttu og sóttu en það voru Svíar sem skoruðu. Sebastian Larsson innsiglaði sigurinn í uppbótartíma þegar hann fylgdi eftir sláarskoti Samuel Holmén. Christian Wilhelmsson lagði upp færið fyrir Holmen en hann kom inn á í hálfleik og breytti miklu fyrir sænska liðið.
Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Segist hafa brugðist gegn Íslandi: „Ég komst aldrei framhjá þeim“ Handbolti Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Handbolti Greip frá þeim skotfastasta og pakkaði vonarstjörnu Svía saman Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Fleiri fréttir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sjá meira