Erlent

Kínverskur andófsmaður flúði úr stofufangelsi

Eftir flóttann birti hann myndband á Youtube þar sem hann biður um að fjölskyldu sinni verði hlíft.
Eftir flóttann birti hann myndband á Youtube þar sem hann biður um að fjölskyldu sinni verði hlíft. nordicphotos/AFP
Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hefur flúið úr stofufangelsi og er sagður í felum einhvers staðar í Peking. Embættismenn hófu strax ákafa leit að honum og beindu athyglinni í fyrstu að fjölskyldu hans.

Það var He Pirong sem náði í Chen og ók honum á stað sem hún segir „nokkuð öruggan" án þess að vilja láta meira uppi. He hefur verið í fararbroddi baráttunnar fyrir því að hann yrði látinn laus.

Hún segir það ekki rétt, sem fullyrt var í dagblaði í Singapúr, að Chen sé kominn í bandaríska sendiráðið í Peking. Kínverska lögreglan sé byrjuð að leita að honum og í raun sé ekkert hægt að ábyrgjast um öryggi hans.

Hún segir að Zhang Jian, bæjarstjóri í Dongshigu, þorpinu þar sem Chen var í haldi, hafi orðið æfur þegar hann komst að því að hann væri flúinn. Hann hafi óðar farið með lið manna að heimili bróður Chens, klifrað þar yfir vegg og byrjað að þjarma að fjölskyldunni.

„Þeir börðu alla úr fjölskyldunni sem voru heima," segir He. Einn frænda Chens, sem heitir Chen Kegui, hafi þá tekið upp kjötsax sér til varnar. „Hann sagðist hafa höggvið til nokkurra manna með kjötsaxinu og sært þá," hefur He eftir frændanum.

Chen, sem er fertugur, hefur verið í stofufangelsi á heimili sínu í Dongshigu í hálft annað ár, eða frá því hann var látinn laus úr fangelsi árið 2010. Hann hafði þá lokið afplánun fjögurra ára dóms sem hann hlaut fyrir að hafa valdið bæði eignaspjöllum og truflunum á umferð.

Chen er lögfræðingur sem árið 2005 vakti athygli á bágu ástandi mannréttindamála í sveitahéruðum Kína, þar sem embættismenn framfylgdu af mikilli hörku þeirri stefnu að enginn megi eiga fleiri en eitt barn.

Chen er blindur og fullvíst þykir að honum hefði ekki tekist að flýja nema með hjálp íbúa í þorpinu Dongshigu.gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×