Komnir í gegnum skaflinn Brjánn Jónsson skrifar 17. júní 2012 22:45 Feðgarnir Jón og Guðmundur
Eftir 50 ár á byggingavörumarkaðinum stendur BYKO sterkum fótum þrátt fyrir efnahagshrun og aukna samkeppni. Jón Helgi Guðmundsson er staðinn upp úr forstjórastólnum en segir Brjáni Jónassyni að sér þyki erfitt að sleppa hendinni af fjölskyldufyrirtækinu. Miklar breytingar hafa orðið á lífi Jóns Helga Guðmundssonar frá því faðir hans stofnaði ásamt mági sínum Byggingavöruverslun Kópavogs, BYKO, fyrir 50 árum. Þá var Jón Helgi 15 ára og rakkaði timbri í nýju versluninni, sem alla tíð síðan hefur verið rekin sem fjölskyldufyrirtæki. Nú 50 árum seinna er hann hættur að rakka timbrinu en segist enn búa að þeirri reynslu að vinna með timbur alla daga. „Við höfum fylgt íslenskri byggingarsögu í 50 ár og verið virkir í því sem hér er búið að gerast allan þann tíma," segir Jón Helgi. „Ég var í timbrinu, rakkaði timbri, afgreiddi og gerði annað sem til féll. Ég kynntist spýtunni ungur og á margar góðar minningar úr timbrinu. Það hefur breyst mikið hvernig timbur er flutt til landsins. Þetta var talsvert mikil vinna fyrir okkur strákana og allt unnið í höndunum. Það var hver spýta handfjötluð." Hann hefur komið sér þægilega fyrir á skrifstofu forstjóra BYKO, sem þar til fyrir ári var hans skrifstofa. Nú hefur Guðmundur sonur hans tekið við forstjórastólnum, en það var ekki auðvelt að sleppa taumnum. „BYKO er grunnurinn að þessu öllu hjá okkur. Ég er búinn að vera í þessu meira og minna í 50 ár. Ég er ekki alveg búinn að sleppa hendinni af BYKO, ég fæ að vera með og get gefið góð ráð af og til. Það hefur ekki verið auðvelt, og var eiginlega ekki hægt eftir þær hamfarir sem urðu hér að skilja einhverja aðra eftir í súpunni. Ég þurfti að vera virkur í því að koma fyrirtækinu í gegnum þann skafl. Nú sér þokkalega til lands með reksturinn, svo kannski fer maður að spila meira golf og lækka forgjöfina." Frá því dyrnar á fyrstu BYKO-versluninni við Kársnesbraut í Kópavogi opnuðust fyrir hálfri öld hafa fleiri fyrirtæki bæst í hópinn. Norvík, móðurfélag BYKO, er með starfsemi í sex löndum og á og rekur stórar verslanakeðjur á borð við Krónuna, Nóatún, og Intersport. Byggingavöruverslanir á Íslandi hafa farið í gegnum mögur ár frá því bankarnir hrundu haustið 2008, en Jón Helgi segir fjárhagslegastöðu BYKO sterka þrátt fyrir erfiðleika í rekstri. „Við höfum auðvitað þurft að takast á við okkar umhverfi á síðustu árum. Við þurftum að loka 12 þúsund fermetra verslun BYKO í Kauptúni í Garðabænum í fyrrahaust. Það reyndist vera svo miðað við efnahagsástandið að þessum tólf þúsund fermetrum virðist hafa verið ofaukið. Síðar hafa reyndar komið yfir tuttugu þúsund fermetrar inn í staðinn hjá öðrum byggingavöruverslunum, hvernig sem þeim kann að reiða af." BYKO hefur þurft að laga sig að breyttu umhverfi eins og önnur fyrirtæki, hagræða í rekstri og segja upp starfsfólki. Breytingarnar eru þó ekki allar tengdar hruninu, því samkeppnin á byggingavörumarkaðinum hefur aukist til muna. Fjárhagslegri endurskipulagningu Húsasmiðjunnar er lokið og keðjan komin í hendur nýrra eigenda. Þá hefur Bauhaus opnað verslun sína, eftir að hafa beðið með tómt húsnæði frá því í hruninu. „Við höfum alla tíð búið við samkeppni. Þegar ég byrjaði í þessum bransa voru fleiri um hituna en eru í dag, þó þetta hafi kannski þjappast meira saman í gegnum árin," segir Jón Helgi. Hann viðurkennir þó að nýir aðilar á markaði hljóti að taka ákveðna markaðshlutdeild, en segir vonandi betri tíð fram undan á byggingarvörumarkaði, sem komi öllum verslununum til góða. Jón Helgi segir að fátt hafi komið á óvart þegar Bauhaus opnaði verslun sína, enda hafi þeir fylgst vel með þróuninni á byggingarvörumarkaðinum erlendis síðustu áratugi. „Fyrirtækin okkar erlendis eru að selja timbur og byggingavörur inn í keðjurnar erlendis svo við þekkjum það mjög vel, höfum fylgst með útsöluverði og öðru. Enda hefur það komið í ljós að það er engin sérstök breyting á verði hér á markaðinum með nýjum aðilum. Vöruúrvalið er sambærilegt, fyrir utan kannski garðvörurnar og gróðurinn, sem við höfum ekki farið út í hjá BYKO. Við erum þá sterkari á öðrum sviðum á móti. Að okkar mati kom ekkert nýtt inn á markaðinn með þessari auknu samkeppni. Svo á eftir að koma í ljós hvernig þetta mun þróast."
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Fleiri fréttir Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Sjá meira