Vandi Spánar illviðráðanlegur 24. júlí 2012 03:00 Enn á ný mótmæla Spánverjar sparnaðaraðgerðum stjórnvalda, sem framlengja samdráttarskeiðið. nordicphotos/AFP
Slæmar fréttir af efnahagslífi Spánar síðustu daga þykja hafa aukið mjög líkurnar á því að stjórn landsins þurfi að leita á náðir björgunarsjóðs evruríkjanna. Mikill titringur var á verðbréfamörkuðum í Evrópu vegna ástandsins og gengi evrunnar lækkaði. Seðlabanki Spánar sagði samdrátt á öðrum ársfjórðungi hafa numið 0,4 prósentum og stjórn landsins spáir því nú að samdráttarskeiðinu ljúki ekki fyrr en 2014. Stjórnin hefur þegar beðið um aðstoð við banka landsins úr neyðarsjóði ESB upp á 100 milljónir evra. Nú bætist hins vegar við vandi héraða landsins, sem hafa beðið ríkisstjórnina um fjárhagsaðstoð. Lántökukostnaður hefur einnig hækkað á Ítalíu. Bæði spænsk og ítölsk stjórnvöld gripu í gær til þess ráðs að banna skortsölu tímabundið til að koma í veg fyrir frekara verðfall á verðbréfamörkuðum. Fjárhagsvandi Grikkja er einnig kominn aftur í kastljósið, því óvíst er um niðurstöður erfiðra samningaviðræðna grísku stjórnarinnar við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn nú í vikunni. Evrópskir stjórnmálamenn hafa verið með yfirlýsingar um að Grikkir hafi ekki staðið við þau sparnaðaráform, sem þeir lofuðu í skiptum fyrir fjárhagsaðstoð frá AGB og ESB. - gb
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Nánast búin með stafrófið Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Sjá meira