Eiturlyf hamla þúsaldarmarkmiðum 28. júní 2012 05:45 Yury Fedotov stýrir skrifstofu SÞ sem berst gegn eiturlyfjum og glæpum.nordicphotos/afp
Efla þarf aðgerðir gegn ólöglegum eiturlyfjum og skipulagðri glæpastarfsemi, eigi að takast að styðja við þróunarlöndin. Þetta segir Yury Fedotov, framkvæmdastjóri stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem berst gegn eiturlyfjum og glæpum (UNODC). Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna kemur fram að um 200 þúsund manns látist árlega í tengslum við heróín, kókaín og önnur eiturlyf. Fjölskyldur splundrist og þjáningar leggist yfir fjölda manns. Þá auki eiturlyfjanotkun á útbreiðslu HIV. Aukna fjármuni þyrfti í þróunaraðstoð. „Í dag hefur aðeins um fjórðungur allra bænda sem tengjast ólöglegri ræktun eiturlyfja aðgang að þróunaraðstoð. Þessu verður að breyta, ef við ætlum okkur að bjóða upp á ný tækifæri og raunverulega valkosti,“ sagði Fedotov, þegar hann kynnti skýrsluna. Hann sagði vaxandi skilning á því að skipulagðir glæpir og útbreiðsla eiturlyfja ynnu gegn þúsaldarmarkmiðum SÞ. Í þeim birtast markmið um aðgerðir gegn fátækt og örbirgð í heiminum. Um 230 milljónir manna, eða 5 prósent jarðarbúa á aldrinum 15 til 64 ára, notuðu ólögleg eiturlyf að minnsta kosti einu sinni árið 2010, samkvæmt skýrslunni. Þá eru 27 milljónir manns háðar eiturlyfjum. Það er rúmlega 0,6 prósent af fullorðnum jarðarbúum, eða einn af hverjum 20.- kóp
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Sjá meira