Samherji leggur þremur skipum vegna strandveiðibáta Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 9. maí 2012 12:07 Myndin er úr safni.
Samherji hefur lagt þremur fiskiskipum og kaupir þess í stað afla á fiskmarkaði frá strandveiðibátum. Framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja segir ólympískar veiðar strandveiðibáta hvergi hafa gefist vel og verð muni lækka til lengri tíma litið. Strandveiðar hófust um allt land um mánaðarmótin og hafa hundruðir báta verið að veiðum síðustu daga í kapphlaupi við að ná sem mestu áður en aflamarki fyrir mánuðinn er náð. Þar af leiðandi hefur magn af þorski og ýsu á markaði aukist gríðarlega og mátti sjá verðlækkun strax í síðustu viku. Samherji hefur ákveðið að nýta sér þessa verðlækkun. Eru þá engin Samherja skip á miðunum eins og staðan er núna? „Það eru engin ísfisk-skip á miðunum frá Samherja þessa stundina, það eru þrjú þeirra bundin við bryggju. Það er þannig að í upphafi mánaðar í þessum strandveiðum er mikið framboð á markaði af fiski og við erum að nýta okkur það, leggjum þessum skipum á meðan og sjómennirnir eru heima en við kaupum hráefni á fiskmörkuðum," segir Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja. Hann segir fyrirtækið neyðast til þess að gera þetta, þar sem atvinna hefur verið flutt frá þeirra sjómönnum og yfir á smábátana. „Það hefur hvergi í heiminum gefist vel að vera með ólympískar veiðar, stjórnlausar, í ákveðinn tíma, það gefur bara verðlækkun á mörkuðum og óvissa með gæði og annað, þannig að þetta er ekki verið að hámarka arðinn af auðlindinni það er alveg ljóst." Hann segir að skipin liggi við bryggju í um það bil viku og þeim verði síðan að öllum líkindum aftur lagt í byrjun júní þegar strandveiðar ná hámarki aftur. „Ég hefði miklu frekar viljað fá að veiða þennan fisk sjálfur og stjórna því hvenær hann er veiddur og af hvaða stærð og af hvaða gæðum heldur en að þurfa að kaupa hann af fleiri hundruð bátum sem maður veit ekki alveg hvernig meðferð á hráefninu er," segir Gestur og bætir við: „Þegar atvinnan er flutt frá okkar sjómönnum yfir á smábáta þá verðum við að nýta það þegar það er gert. Ef að veiðin í strandveiðinni þróast eins og undanfarin ár þá er kúfurinn á henni fyrstu vikuna í hverjum mánuði, það má gera ráð fyrri að skipin liggi allavega fyrstu vikuna."
Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Innlent Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Innlent Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Erlent Fleiri fréttir VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Bjórinn nú leyfður á vellinum Íhugar að bjóða fram til varaformanns Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Sjá meira