Tveir látnir eftir árás óþekktra köngulóa 6. júní 2012 02:00 Ratul Rajkhowa, prófessor við líffræðideild Cotton College, heldur hér á dauðri könguló af tegund sem valdið hefur usla í afskekktu héraði í norðausturhluta Indlands. Nordicphotos/AFP
Ný tegund stórra árásargjarnra köngulóa hefur valdið ofsahræðslu í þorpi í Assam, afskekktu héraði í Norðaustur-Indlandi. Íbúarnir kölluðu á hjálp eftir að fjöldi köngulóa „réðist inn“ í þorpið. Tveir hafa látist eftir að hafa orðið fyrir köngulóarbiti, en fulltrúar heilbrigðisyfirvalda segja ekki loku fyrir það skotið að frumstæð viðbrögð við biti köngulónna kunni að hafa valdið fórnarlömbum þeirra meiri skaða en bitið sjálft. Í tilfellum þeirra sem létust höfðu „töfralæknar“ reynt að létta á þrýstingi í bólgum og ná út eitri með því að skera í bitstaði með rakvélarblöðum. Líkin voru svo brennd áður en til krufningar kom og því ekki vitað hvort meðferðin eða eitur köngulónna varð fólkinu að aldurtila. Sjö önnur fórnarlömb köngulóa-árása hafa fengið sýklalyf, er haft eftir Anil Phapowali lækni í bænum Sadiya, en þau höfðu líka reynt að skera í bólgur til að veita úr þeim og létta á þrýstingi. Köngulærnar eru sagðar árásargjarnar og stökkva á fólk verði þær varar við hreyfingu. Þeirra varð fyrst vart fyrir um mánuði síðan, en L.R. Saikia, vistfræðingur við Assam Dibrugrh Háskóla segir að hér gæti verið um að ræða áður óþekkt afbrigði tarantúlu. Köngulærnar eru um þumalstórar. Meðan beðið er niðurstöðu greiningar á köngulónum og hvort þær eru í raun eitraðar eru þorpsbúar sagði varir um sig og reyna að gæta þess að köngulær laumist ekki inn í kofa þeirra að næturlagi. Um hundrað þúsund manns, aðallega fátækir hrísgrjónabændur, búa á svæðinu þar sem köngulónna hefur helst orðið vart. - óká
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Fleiri fréttir Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Sjá meira