Erlent

Búsáhaldabylting hafin í Argentínu

Búsáhaldabylting er hafin í Argentínu á svipuðum nótum og gerðist hér á Íslandi í kjölfar fjármálahrunsins fyrir fjórum árum síðan.

Þúsundir Argentínumanna voru á götum Buenos Aires höfuðborgar landsins í gærkvöldi þar sem pottar og pönnur voru barðar í miklum móð. Mótmæli sem þessi hafa verið algeng í landinu að undanförnu en almenningur þar er að mótmæla ríkisstjórninni, hárri glæpatíðni, mikilli verðbólgu og spillingu í stjórnmálum landsins.

Í frétt um málið á vefsíðu CNN segir að hingað til hafi stjórnvöld ekki svarað óskum almennings í þessum mótmælum. Hinsvegar setti Cristina Kirchner forseti Argentínu færslu á facebook síðu sína í morgun um að lýðræði ríki í landinu og að þar sé fólki frjálst að tjá skoðanir sínar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×