Erlent

Clinton eða Bush líklegust sem næsti forseti Bandaríkjanna

Þótt ekki séu nema þrír dagar frá því að bandarísku forsetakosningunum lauk eru stjórnmálaskýrendur þegar farnir að spá í spilin hvað kosningarnar 2016 varðar. Tvö nöfn bera þar hæst, Clinton og Bush.

Hér er um Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Jeb Bush fyrrum ríkisstjóra á Flórída að ræða. Flestir bandarískir stjórnmálaskýrendur setja þau tvo á toppinn á lista sína yfir hugsanlega forsetaframbjóðendur í kosningunum eftir fjögur ár.

Stjórnmálavefsíðan politico er með ítarlega úttekt á möguleikum þeirra tveggja í næstu kosningum undir fyrirsögninni: Aftur til framtíðar.

Hvað Hillary varðar hefur hún aldrei verið vinsælli meðal Bandaríkjamanna og ef hún nær að halda þeim vinsældum fram til 2016 þykir líklegt að hún geri aðra tilraun til að verða forsetaefni Demókrataflokksins. Alla vega er hún með nafnið til þess.

Hvað Jeb Bush varðar er hann einnig með nafnið sem þarf en hann er talinn mun gáfaðri og hófsamari en bróðir sinn George fyrrum forseti. Það sem mælir með Jeb er að Repúblikanar verða að ná til kjósenda af rómönskum uppruna í næstu kosningum en þegar Jeb var ríkisstjóri á Flórída átti hann mjög gott samstarf við leiðtoga þessara kjósenda í ríkinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×