Fá mynddiskana ekki afhenta BBI skrifar 6. september 2012 19:00 Hæstiréttur Íslands.
Meirihluti Hæstiréttar staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness um að verjendur Annþórs Karlssonar og fleiri sakborninga fái ekki afhenta mynd- og hljóðdiska með skýrslutökum af sakborningum og vitnum í málinu. Þetta var niðurstaðan þrátt fyrir að Börkur Birgisson, einn sakborninga, hefði fyrir mistök fengið aðgang að diskunum. Hæstiréttur vísaði til þess að mynd- og hljóðdiskar teljist ekki vera skjöl. Í 1. mgr. 37. gr. sakamálalaganna kemur fram að verjandi manns skuli fá afrit af öllum skjölum máls sem varða skjólstæðing hans jafnskjótt og unnt er. Samkvæmt dómvenju falla mynd- og hljóðdiskar ekki undir þetta ákvæði, enda ekki um skjöl að ræða, og því fá verjendurnir þá ekki afhenta. Hæstiréttur bendir hins vegar á að innihald diskanna hafi verið skráð í skjöl og verjendur hafi fengið aðgang að þeim. Meirihluti Hæstaréttar tekur fram að engu breyti um þessa niðurstöðu þó einn sakborningur í málinu hafi fengið aðgang að gögnunum fyrir mistök. Þar er átt við Börk Birgisson sem fékk mynddiskana senda á Litla Hraun í lok júlí eða byrjun september. Jón Steinar Gunnlaugsson skilar sératkvæði í málinu. Hann vill veita verjendunum afrit af diskunum enda leiði dómvenjan sem meirihluti Hæstaréttar byggir á til þess að rannsakendur sakamála geti í raun ákveðið hvort verjendur fái aðgang að skýrslum vitna og sakborninga með því að ákveða hvaða tækni er notuð við skráningu þeirra. Þetta telur hann ekki tryggja réttaröryggi sakaðra manna nægilega vel og vill skýra ákvæðið sem um ræðir rýmra, svo að hljóð- og mynddiskar falli þar undir.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Sjá meira