Voðaverk framin í skjóli aðgerðaleysis 28. júlí 2012 00:30 Þrír sýrlenskir lögreglumenn í höndum uppreisnarmanna. nordicphotos/AFP „
Að mínu mati er það einungis tímaspursmál hvenær ríkisstjórn sem beitir svona öflugum hernaðarmætti og hemjulausu ofbeldi gegn almenningi fellur,“ sagði norski herforinginn Robert Mood við fréttastofuna Reuters. Mood er nýhættur sem yfirmaður friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi, en lét þau orð falla nýverið að tilgangslítið sé að vera með friðargæslulið þar í landi því hvorki stjórnarherinn né uppreisnarmenn virðist hafa minnsta áhuga á að virða samkomulag um vopnahlé. Harðir bardagar hafa geisað síðustu daga í Aleppo, næststærstu borg landsins, og eru bæði stjórnarherinn og uppreisnarmenn að búa sig undir enn harðari átök þar. Stjórnarherinn hefur verið að flytja þungavopn og skriðdreka til borgarinnar. Bæði Sameinuðu þjóðirnar og Bandaríkin hafa varað við því að stórfelldar árásir á almenning séu yfirvofandi á næstunni. Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segir að nú þegar hafi borist fregnir af margvíslegum voðaverkum og mannréttindabrotum í höfuðborginni Damaskus, þar sem harðir bardagar voru í nokkra daga. Þessar fregnir boði ekki gott fyrir íbúa í Aleppo. Hún hvetur bæði stjórnarherinn sem uppreisnarmenn til þess að hlífa almennum borgurum. Hún segist sannfærð um að bæði stjórnarherinn og uppreisnarmenn séu að fremja glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi: „Og það þarf ekki að taka það fram að þegar þungavopnum, skriðdrekum, árásarþyrlum og – eftir því sem sagt er – jafnvel orrustuþotum er beitt í auknum mæli á borgarhverfi hefur það nú þegar kostað marga almenna borgara lífið og mörgum öðrum er stefnt í hættu.“ Þegar Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom til Srebrenica í Bosníu á fimmtudag varaði hann við því að svipuð voðaverk geti verið í uppsiglingu í Sýrlandi á næstu dögum eins og þau sem framin voru í Srebrenica árið 1995. „Alþjóðasamfélagið verður að standa saman um að ekkert frekara blóðbað verði í Sýrlandi, því ég vil ekki að einhver eftirmanna minna komi til Sýrlands eftir 20 ár að biðjast afsökunar því það sem við hefðum getað gert til að verja almenning, það erum við ekki að gera núna,“ sagði hann. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Sjá meira