Hörð átök í Aleppo í dag KHN skrifar 28. júlí 2012 18:46
Hörð átök brutust út í borginni Aleppo í Sýrlandi í dag. Stjórnarhermenn og uppreisnarmenn berjast um yfirráð í borginni en andspyrnumenn hafa hertekið stór svæði hennar. Sameinuðu Þjóðirnar og helstu þjóðarleiðtogar óttast mikið mannfall. Stjórnarhermenn í Sýrlandi notuðu þungavopn og orrustuþyrlur til að hrekja uppreisnarmenn á brott úr Aleppo, stærstu borg Sýrlands, í dag. Helstu samtök stjórnarandstæðinga í landinu, Frelsisher Sýrlands, hefur á síðustu dögum hertekið stór svæði í borginni en yfirráð yfir henni skipta sköpum í valdabaráttunni um landið. Fregnir af átökunum eru óljósar og enn er ekki vitað fyrir víst hversu margir hafa fallið í dag. Samkvæmt sýrlenskum mannréttindasamtökum hafa þó að minnsta kosti 90 látist í borginni í dag. Sameinuðu Þjóðirnar ásamt mörgum þjóðarleiðtogum hafa varað við því að stórfelldar árásir verði gerðar á íbúa Aleppo og óttast margir að gríðarlegt mannfall verði í átökunum. Íbúafjöldi Aleppo telur um það bil þrjár milljónir en borgin er þungamiðja viðskiptalífs Sýrlands. Aleppo er ein elsta borg veraldar - nú hafa hermenn umkringt hana, gráir fyrir járnum, og látið sprengjum rigna yfir hana. Síðustu vikur hafa reynst yfirvöldum í Sýrlandi erfiðar. Uppreisnarmenn hafa hertekið mörg svæði í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Þá hafa nokkrir háttsettir einstaklingar í ríkisstjórn Bashar al-Assads, forseta Sýrlands, svikist undan litum og flúið land. En á sama tíma hafa stjórnarhermenn eflt árásir sínar á andspyrnumenn og hafa hundruð fallið á síðustu dögum í landinu. Þá er talið að rúmlega 20 þúsund hermenn, andspyrnumenn og óbreyttir borgarar hafi látist síðan átök hófust í landinu fyrir 17 mánuðum.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Sjá meira