Ísland nógu gott til að komast á HM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. september 2012 16:45
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, segir engan vafa um að Ísland eigi möguleika að vinna sér sæti í úrslitakeppni HM sem fer fram í Brasilíu eftir tvö ár. Lagerbäck stýrir landsliðinu í sínum fyrsta mótsleik þegar að liðið mætir Noregi í undankeppni HM í kvöld. Hann segir helstu ástæðuna fyrir því að Ísland hafi getuna til að komast á stórmót vera gott gengi U-17 og U-21 landsliða Íslands í gegnum tíðina. U-17 liðið keppti til úrslita á EM 2007 og svo aftur núna í vor. U-21 lið Íslands keppti í úrslitakeppni EM í Danmörku í fyrra. „Fyrst U-17 og U-21 liðið gátu það þá getum við það líka," sagið hann á blaðamannafundi í gær. „Á mínum 20-30 árum hjá sænska sambandinu náði U-17 liðið að komast kannski tvisvar í úrslitakeppni EM. En Íslandi tókst það." „Ástæðan er helst sú að félögin og knattspyrnusambandið vinna mjög náið saman að aðhlynningu ungra leikmanna. Hér eru innanhúshallir þar sem æft er allt árið og margir hæfileikaríkir leikmenn sem huga þarf vel að." Hann segir viðhorf íslenska knattspyrnumanna einnig mjög gott og það hafi hann vitað áður en hann kom hingað til lands til að taka við starfi landsliðsþjálfara. „Ég hafði komið margoft hingað til lands áður en ég tók við starfinu. Það er kannski erfitt að bera Íslendinga saman við aðrar Norðurlandaþjóðir en þeir virðast vera meiri einstaklingar og afslappaðri. Þeim finnst ekkert merkilegt ef einhver frægur gengur inn í herbergið." „Þeir virðast taka hlutunum eins og þeir koma. Það er gott að vinna með þeim og íslenskir knattspyrnumenn er umhugað um liðsheildina. Þess vegna tók ég við þessu starfi."
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Víkingur Götu - Stjarnan | Garðbæingar í góðum málum Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Fleiri fréttir Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Víkingur Götu - Stjarnan | Garðbæingar í góðum málum Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Argentíska landsliðið má búast við sekt „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Reyndu að brjótast inn í hús Yamals De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ „Mig dreymdi þetta“ „Svekkjandi er rétta orðið“ „Ég er feginn að vinna loksins á heimavelli“ Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ „Miður mín fyrir hönd allra“ Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Sjá meira