Innlent

Tíu umferðaróhöpp vegna hálku og slæms skyggnis

Tíu umferðaróhöpp urðu á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi sem flest eru rakin til hálku og slæms skyggnis.

Bíll fór út af Reykjanesbrautinni og annar valt þar, en engan sakaði og ökumaður bíls, sem valt út af Vesturlandsvegii slasaðist ekki alvarlega.

Veður var víða vont i nótt og lentu tveir ökumenn i vandræðum á Öxnadalsheiði. Annars var sára lítil umferð á þjóðvegum landsins í gærkvöldi, samkvæmt talningastöðvum Vegagerðarinnar, enda höfðu lögregla, Veðurstofan og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra varað vð afleitu ferðaveðri í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×