Erlent

Fimm milljónir glasabarna hafa fæðst í heiminum

Fimm milljónir svokallaðra glasabarna hafa nú fæðst víðsvegar í heiminum. Fyrsta glasabarnið kom í heiminn í júlí árið 1978 í Bretlandi og hlaut nafnið Louise Brown. Móðir hennar lést nýlega.

Glasabörn voru aðalumræðuefnið á ráðstefnu frjósemissérfræðinga um helgina í Tyrklandi. Þar kom m.a. fram að glasabarnatæknin sé ein sú besta til að ófrjórir einstaklingar geti eignast börn. Um 1,5 milljón aðgerða eru framkvæmdar á hverju ári og úr þeim fæðast um 350.000 börn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×