Erlent

Hundurinn Theo hlaut heiðursorðu

Liam Tasker og Theo við skyldustörf í Afganistan.
Liam Tasker og Theo við skyldustörf í Afganistan. MYND/AP
Sprengjuleitarhundurinn Theo, sem lést við skyldustörf í Afganistan á síðasta ári, hlaut í dag Dickens orðuna, æðstu heiðursorðu Bretlands fyrir hugrekki dýra.

Theo, sem var enskur Springer Spaniel, var í fimm mánuði í Afganistan ásamt þjálfara sínum, Liam Tasker, undirliðþjálfa. Tasker lést í skotbardaga við uppreisnarmenn í Helmand-héraði í mars árið 2011. Theo slasaðist í átökunum og lést seinna meir á hersjúkrahúsi.

Lík Theo og eiganda hans voru síðan flutt með sama flugi aftur til Bretlands.

Frá árinu 1943 hefur fjöldi dýra hlotið Dickens heiðursorðuna. Þar á meðal eru nokkrar bréfdúfur og Border Collie hundur sem var meðlimur í skyndiárásarsveit bandamanna í seinni heimsstyrjöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×