Innlent

Pétur Tyrfingsson heiðursfélagi Blúsfélagsins

Pétur Tyrfingsson, lengst til hægri, fer hamförum í blúsinum.
Pétur Tyrfingsson, lengst til hægri, fer hamförum í blúsinum.
Heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur árið 2012 er Pétur Tyrfingsson. Útnefning heiðursfélagans var kynnt við setningarathöfn Blúshátíðar sem fram fór í Kolaportinu í dag, laugardaginn 31. mars samkvæmt tilkynningu frá blúsurunum.

Pétur Tyrfingsson er vel að heiðrinum kominn en fáir hafa verið jafn ötulir og hann við að kynna og stuðla að uppgangi blústónlistarinnar á Íslandi. Í sex ár hélt Pétur úti vikulegum útvarpsþáttum um blús og eftir hann liggur fjöldi blaðagreina um sögu blústónlistarinnar, tónlistarmenn og fleira sem viðkemur tónlistarstefnunni.

Tregasveitin, hin goðsagnakennda hljómsveit Péturs, var mjög áberandi í blúslífi landsmanna fyrr á árum. Þar vakti Guðmundur, sonur Péturs, fyrst athygli en Guðmundur Pétursson varð heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur á síðasta ári.

Það er mikill heiður fyrir Blúshátíð í Reykjavík að kynna endurkomu Tregasveitarinnar á Blúshátíð og það verður forvitnilegt að heyra þá feðga Pétur Tyrfingsson og Guðmund Pétursson spila saman eftir öll þessi ár.

Fjöldi viðburða verður í Reykjavík næstu daga á vegum Blúshátíðar sem nær hámarki með þremur stórtónleikum á Hilton Reykjavík Nordica næstkomandi þriðjudags-, miðvikudags-, og fimmtudagskvöld með erlendum og innlendum blústónlistarmönum.

Blúsfélag Reykjavíkur var stofnað þann 6 nóvember 2003. Tilgangur félagsins er að auka hróður blússins á Íslandi. Blúsfélagið rekur vefsetrið www.blues.is þar er að finna upplýsingar um allt sem tengist blús á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×