Óvíst um samningsvilja Kína 4. maí 2012 02:00 Chen hitti aftur fjölskyldu sína á miðvikudag eftir sex daga dvöl í bandaríska sendiráðinu. nordicphotos/AFP
Bandarísk stjórnvöld virðast ekki hafa áttað sig á að kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hafi yfirgefið sendiráð Bandaríkjanna í Peking nauðugur viljugur, af ótta við öryggi fjölskyldu sinnar. Gary Locke, sendiherra Bandaríkjanna í Kína, fylgdi Chen á sjúkrahús á miðvikudaginn eftir að hann hafði dvalist sex daga í sendiráðinu. Aðeins fáeinum klukkustundum síðar sagði Chen við blaðamenn að hann vildi komast úr landi með fjölskyldu sinni. „Við þurfum að ráðgast við þau áfram til að fá betri tilfinningu fyrir því hvað þau vilja gera og hvaða möguleika þau telja sig hafa,“ sagði Victoria Nuland, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins. Bandaríkjamenn segjast ætla að fylgja málinu eftir, en óvíst þykir að Kínverjar hafi nokkurn áhuga á frekari samningaviðræðum um örlög Chens. Þeir brugðust ókvæða við þegar fréttist að Chen hefði flúið úr stofufangelsi og fengið inni í bandaríska sendiráðinu. Locke sendiherra sagði upphaflega að Chen hefði fengið fullvissu fyrir því að hann yrði ekki aftur sendur til heimabæjar síns, heldur fengi hann að dvelja á öruggum stað í Kína ásamt fjölskyldu sinni og gæti lagt þar stund á háskólanám.- gb
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Sjá meira