Framhjáhald veldur fjaðrafoki í hernum 13. nóvember 2012 23:45 Herforingjarnir John Allen og David Petraeus ásamt varnarmálaráðherranum Leon Penett. Allen tók sumarið 2011 við af Petraeus sem yfirmaður bandaríska herliðsins í Afganistan. nordicphotos/AFP
John Allen, yfirmaður bandaríska herliðsins í Afganistan, sætir nú rannsókn í tengslum við framhjáhald Davids Petraeus. Í síðustu viku sagði Petraeus af sér sem yfirmaður CIA vegna framhjáhaldsins. Framhjáhald Davids Petraeusar, sem á föstudag sagði af sér sem yfirmaður leyniþjónustunnar CIA, með Paulu Broadwell ætlar að draga lengri dilk á eftir sér en í fyrstu var talið. Nú er röðin komin að John Allen, yfirmanni bandaríska herliðsins í Afganistan, sem orðið hefur uppvís að „óviðeigandi“ tölvusamskiptum við aðra vinkonu Petraeusar, Jill Kelley. Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tekið við rannsókn á þessum tölvusamskiptum af bandarísku alríkislögreglunni FBI. Þá hefur Leon Panetta varnarmálaráðherra frestað því að gera Allen að yfirmanni bandaríska herliðsins í Evrópu og jafnframt herafla Atlantshafsbandalagsins í Evrópu. Upp komst um framhjáhaldið þegar alríkislögreglan FBI hóf rannsókn á nafnlausum hótunarbréfum til Kelley, sem Petraeus hefur þekkt lengi. Í þessum bréfum er Kelley sagt að halda sig fjarri Petraeus. Rannsóknin leiddi í ljós að hótunarbréfin komu frá Paulu Broadwell, sem hafði skrifað ævisögu Petraeusar. Þar með hafði lögreglan fengið ástæðu til að kanna frekar tölvupóst hennar, og komst þannig að því að samband Broadwell og Petreausar var býsna náið. Samband þeirra Petraeusar og Broadwell virðist hafa byrjað í nóvember árið 2011, þegar Petraeus var nýtekinn við yfirmennsku hjá CIA. Hann hafði áður verið yfirmaður bandaríska herliðsins í Afganistan. Sambandi þeirra virðist síðan hafa lokið í júlí á þessu ári. Herforinginn Allen, sem tók við af Petraeus í Afganistan sumarið 2011, flæktist síðan í málið þegar í ljós kom að Kelley hafði átt í tölvusamskiptum við hann, en varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna segir þau bréfaskipti hafa verið „óviðeigandi“. Um er að ræða 20 til 30 þúsund blaðsíður af tölvupóstskeytum og öðrum skjölum sem fóru á milli þeirra á árunum 2010 til 2012. Ekki hefur verið skýrt frá því hvað er svona óviðeigandi við þessi tölvusamskipti, en helst hefur verið nefnt að annaðhvort hafi þau átt í ástarsambandi eða í skjölunum hafi verið viðkvæmar upplýsingar. Hvort heldur sem er gæti Allen átt yfir höfði sér refsingu. Í bandaríska hernum er framhjáhald brot gegn herreglum, og sömuleiðis varðar við lög að leka upplýsingum er varða herinn. Ekki hefur heldur komið skýrt fram hvort Petraeus sagði af sér vegna framhjáhaldsins eða vegna þess að hann hafi hugsanlega veitt Broadwell meiri upplýsingar en hann hafði heimild til.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Sjá meira