Samaras orðinn forsætisráðherra 21. júní 2012 00:15 Antonis Samaras sór embættiseið í forsetahöllinni í Aþenu í gær. fréttablaðið/ap
Antonis Samaras sór í gær embættiseið sem forsætisráðherra Grikklands. Flokkur hans, Nýi lýðræðisflokkurinn, myndaði stjórn með sósíalistaflokknum Pakos og Lýðræðislega vinstriflokknum. „Ég bið nýja ríkisstjórn, sem verður mynduð á morgun [í dag], að leggja hart að sér svo við getum veitt fólkinu okkar áþreifanlega von," sagði Samaras í gær. Hann er fjórði forsætisráðherra Grikkja á 8 mánuðum. Flokkarnir þrír styðja allir björgunaráætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins, sem felur í sér mikinn niðurskurð á mörgum sviðum. Flokkarnir hafa þó lýst því yfir að þeir vilji semja við AGS og ESB á nýjan leik um skilmálana. Samaras hefur til dæmis sagst vilja lækka skatta og koma hagkerfinu af stað á ný. Hinir flokkarnir tveir hafa talað fyrir tveggja ára framlengingu á frestum sem ríkið hefur fengið til að skera niður. Fotis Kouvelis, leiðtogi Lýðræðislega vinstriflokksins, segir Grikki á endanum eiga að losa sig undan skuldbindingunum. Búist er við að markaðir taki fagnandi myndun ríkisstjórnar.- þeb
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Sjá meira